bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 13
Hosea 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 14 →
1
Þegar Efraím tók til máls skelfdust menn, hann var virtur í Ísrael en varð sekur vegna Baals og dó.
2
Og nú syndga þeir áfram og steypa sér líkneski úr silfri sínu, skurðgoð af eigin hugviti sem öll eru verk handverksmanna. Þeir segja: „Menn færa fórnir og kyssa kálfa.“
3
Þess vegna munu þeir líkjast morgunþoku og dögg sem hverfur fljótt eða hismi sem feykt er af þreskivelli og reyk sem hverfur út um ljóra.
4
En ég, Drottinn, er Guð þinn síðan í Egyptalandi og þú skalt engan Guð játa annan en mig og enginn er frelsari nema ég.
5
Ég annaðist þig í eyðimörkinni, í skraufþurru landi.
6
Þegar þeir höfðu haglendi urðu þeir saddir, urðu saddir og fylltust hroka og því gleymdu þeir mér.
7
Ég mun reynast þeim sem ljón, ligg í leyni við veginn eins og pardus,
8
ræðst á þá eins og birna svipt húnum sínum og ríf þá á hol, ég gleypi þá eins og ljón, villidýr munu slíta þá í sundur.
9
Eyðing kemur yfir þig, Ísrael, en hjálp þín er í mér.
10
Hvar er nú konungur þinn sem gæti bjargað þér og öllum borgum þínum, hvar stjórnendur þínir? Þú baðst um þá og sagðir: „Fáðu mér konung og höfðingja.“
11
Ég gaf þér konung í reiði minni og tók hann aftur í heift minni.
12
Sekt Efraíms er innsigluð, synd hans geymd.
13
Þrautir líkar fæðingarhríðum koma yfir hann. Hann er heimskur sonur. Þegar stundin er komin kemur hann ekki í burðarliðinn.
14
Á ég að leysa þá úr greipum heljar, frelsa þá frá dauða? Hvar eru sóttir þínar, dauði, hvar broddur þinn, hel? Augu mín þekkja enga miskunn.
15
Þó að Efraím blómgist innan um sefgresi kemur austanvindurinn, stormur frá Drottni. Hann hefur sig upp frá eyðimörkinni, vatnsból þorna og uppsprettur þrjóta. Hann rænir fjárhirsluna öllum dýrgripum sínum.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
Recommended Reading
Commentary
Hosea Commentaries
→
Devotional
Hosea Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→