bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 12
Hosea 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 13 →
1
Efraím umkringdi mig með lygi og Ísraelsmenn með svikum. En Júda gengur enn með Guði, tryggur Hinum heilaga.
2
Efraím hefur vingast við vindinn og eltir austanstorminn allan daginn, hann margfaldar lygi og ofbeldi. Þeir gera sáttmála við Assýríu og flytja olíu til Egyptalands.
3
Þess vegna sækir Drottinn mál á hendur Ísrael til að draga Jakob til ábyrgðar fyrir breytni hans.
4
Í móðurkviði blekkti hann bróður sinn og fullvaxinn glímdi hann við Guð,
5
hann glímdi við engil og hafði betur, hann grét og bað um miskunn. Í Betel fann Drottinn hann og talaði við hann,
6
Drottinn, Guð allsherjar, Drottinn er nafn hans.
7
En þú skalt snúa aftur til Guðs þíns. Vertu trúr og réttlátur og vona stöðugt á Guð.
8
Prangari með svikna vog í hendi sækist eftir að pretta
9
en Efraím sagði: „Ég er kominn í álnir, ég hef aflað mér fjár, ekkert af gróða mínum, ekkert af gróða mínum hefur gert mig sekan um synd.“
10
Ég er Drottinn, Guð þinn, síðan í Egyptalandi, ég fæ þér aftur bústað í tjöldum eins og þegar við fundumst fyrst.
11
Ég mun tala til spámannanna og ég mun fjölga sýnunum og fyrir munn spámannanna mun ég tala í líkingum.
12
Sé Gíleað illur eru þeir einskis nýtir. Í Gilgal fórnuðu menn nautum en ölturu þeirra urðu eins og grjóthrúgur í plógförum á ökrum.
13
Jakob flýði til Aramsléttu, Ísrael gerðist þjónn vegna konu, vegna konu gætti hann fjár.
14
Fyrir meðalgöngu spámanns leiddi Drottinn Ísrael út af Egyptalandi og um hann var annast fyrir meðalgöngu spámanns.
15
Efraím olli sárri gremju. Því mun Drottinn leggja hans eigin blóðsekt á hann og láta svívirðingu hans koma honum í koll.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14