bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 8
Hosea 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 9 →
1
Hef hafurshorn að vörum. Það er sem örn komi yfir hús Drottins
2
af því að menn hafa rofið sáttmála minn og brotið gegn lögum mínum.
3
Þeir hrópa til mín: „Guð minn. Vér Ísraelsmenn þekkjum þig.“ Ísrael hefur hafnað því sem gott er, fjandmaður skal ofsækja hann.
4
Þeir tóku sér konunga að mér forspurðum, völdu sér höfðingja sem ég viðurkenni ekki, þeir gerðu sér skurðgoð úr silfri og gulli, aðeins til að þeim yrði eytt.
5
Afneita kálfi þínum, Samaría. Reiði mín bálar gegn þeim, hversu lengi verða þeir óhreinir?
6
Þeir eru þó Ísraelsmenn. En kálfinn gerði handverksmaður svo að hann er ekki guð. Kálfur Samaríu verður brotinn í spón.
7
Þar sem þeir sáðu vindi skulu þeir uppskera storm. Ax án korns gefur ekki af sér mjöl en beri það korn gleypir útlendingur það.
8
Ísrael hefur verið gleyptur, nú er hann innan um framandi þjóðir eins og gagnslaust ker.
9
Því að þeir fóru upp til Assúrs. Villiasni fer einförum. Efraím kaupir sér vináttu,
10
en þó að þeir greiði framandi þjóðum skækjulaun safna ég þeim nú saman og brátt munu þeir engjast undir áþján máttugs konungs.
11
Þegar Efraím fjölgaði ölturum til syndafórna urðu þau honum ölturu til að syndga.
12
Skrái ég fjölmörg boð mín fyrir hann finnst honum þau framandleg.
13
Þeim geðjuðust sláturfórnir, þeir slátruðu og neyttu fórnarkjötsins en Drottni þóknuðust þær ekki. Nú minnist hann misgjörða þeirra, dregur þá til ábyrgðar fyrir syndir þeirra. Þeir skulu hverfa aftur til Egyptalands.
14
Ísrael gleymdi skapara sínum og reisti sér hallir og Júda fjölgaði virkisborgum, en ég mun senda eld í borgir hans og eldurinn skal gleypa hallir hans.
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14