bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 5
Hosea 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
1
Heyrið þetta, þér prestar, takið eftir, Ísraelsmenn, hlustaðu, konungsætt, því að þér ábyrgist réttinn. En þér urðuð snara fyrir Mispa, útbreitt net á Tabor,
2
djúp gröf grafin í Sittím en ég mun refsa yður öllum.
3
Ég þekki Efraím og Ísrael er mér ekki hulinn en nú hefurðu hórast, Efraím, Ísrael hefur saurgað sig.
4
Verk þeirra leyfa þeim ekki að hverfa aftur til Guðs síns. Þar sem hórdómsandi er í brjósti þeirra þekkja þeir ekki Drottin.
5
Hroki Ísraels vitnar gegn honum og Ísrael og Efraím líða undir lok vegna eigin sektar. Júda líður einnig undir lok ásamt þeim.
6
Þeir munu halda af stað með hjarðir sauða sinna og nauta til að leita Drottins en þeir finna hann ekki, hann hefur yfirgefið þá.
7
Þeir hafa svikið Drottin því að þeir hafa eignast óskilgetin börn. Nú skal tunglkoman eyða þeim og ekrum þeirra.
8
Þeytið horn í Gíbeu, lúður í Rama, hrópið heróp í Betaven, gæt þín, Benjamín.
9
Efraím verður auðn á degi refsingarinnar. Ættbálkum Ísraels flyt ég áreiðanlegan boðskap.
10
Höfðingjar Júda hegða sér eins og þeir sem færa til landamerki, ég mun hella heift minni yfir þá eins og vatni.
11
Efraím er kúgaður, rétturinn fótum troðinn því að hann ákvað að fylgja lygi.
12
En ég reynist Efraím eins og mölur og Júdamönnum sem rotnun.
13
Þegar Efraím uppgötvaði sjúkdóm sinn og Júda sár sín leitaði Efraím til Assýríu og sendi til stórkonungsins en hann gat ekki gert þá heila, ekki grætt sár þeirra.
14
Því að ég reynist Efraím eins og ljón, Júdamönnum sem ungt ljón, sjálfur ríf ég þá í sundur, dreg þá burt og enginn getur bjargað.
15
Ég sný aftur heim og verð þar uns þeir iðrast og leita auglitis míns. Þeir munu leita til mín í neyð sinni.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14