bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Hosea 7
Hosea 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 8 →
1
Þegar ég lækna Ísrael kemur misgjörð Efraíms í ljós og illskuverk Samaríu. Þeir hafa svikið: Þjófur brýst inn og úti á strætinu herja ránsflokkar
2
en þeir leiða ekki hugann að því að ég man eftir öllum illskuverkum þeirra. Nú umkringja þá eigin verk, þeir koma fyrir auglit mitt.
3
Þeir glöddu konung með illsku sinni og höfðingja með svikum sínum.
4
Allir eru þeir hórkarlar, þeir eru sem glóandi ofn sem bakari þarf ekki að kynda á meðan deig er hnoðað þar til það hefur súrnað.
5
Á degi konungs vors urðu hermenn sjúkir af svalli, vínið sveif á gárunga.
6
En þeir nálgast á laun, hjarta þeirra er sem glóandi ofn. Alla nóttina blundar heift þeirra, að morgni blossar hún upp eins og eldslogi.
7
Allir eru þeir glóandi sem ofn, þeir gleypa stjórnendur sína, allir konungar þeirra féllu, enginn þeirra ákallar mig.
8
Efraím blandaðist framandi þjóðum. Efraím er kaka, bökuð öðrum megin,
9
útlendingar gleyptu kraft hans án þess að hann skildi það, hár hans varð grátt án þess að hann skildi það.
10
Hroki Ísraels vitnar gegn honum sjálfum og Ísraelsmenn hverfa ekki aftur til Drottins, Guðs síns, leita hans ekki þrátt fyrir allt þetta.
11
Efraím líkist dúfu, einfaldri og skilningslausri. Þeir hrópa á hjálp frá Egyptalandi, fara til Assýríumanna.
12
Þegar þeir fara kasta ég yfir þá neti, dreg þá niður eins og fugla himins, gríp þá strax og ég heyri í flokki þeirra.
13
Vei þeim, þeir hafa flúið mig, þeir deyi, þeir hafa brugðist mér. Ég ætlaði að leysa þá en þeir fóru með lygar um mig
14
og hrópuðu ekki til mín í hjarta sínu þegar þeir kveinuðu í hvílum sínum. Vegna korns og víns ristu þeir á sig skinnsprettur, þeir hafa snúist gegn mér.
15
Ég sjálfur styrkti þá og jók mátt þeirra en þeir vildu mér illt.
16
Þeir sneru sér að því sem fánýtt er, urðu sem svikull bogi. Höfðingjar þeirra skulu falla fyrir sverði vegna formælinga tungu sinnar. Því verða þeir hafðir að spotti í Egyptalandi.
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14