bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 13
Ezekiel 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 14 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, talaðu gegn spámönnum Ísraels sem nú flytja spámannlegan boðskap. Segðu við þá sem flytja spámæli úr eigin hjarta: Hlýðið á orð Drottins.
3
Svo segir Drottinn Guð: Vei hinum heimsku spámönnum sem fara eftir eigin hugarburði án þess að hafa séð neitt.
4
Spámenn þínir, Ísrael, eru eins og refir í rústum.
5
Þið hafið hvorki stigið upp í skörðin í varnarmúrnum né gert við víggirðingar fyrir Ísraelsmenn svo að þeir geti staðist í orrustunni á degi Drottins.
6
Sýnir þeirra eru tál og spámælin lygi. Þeir segja: „Drottinn hefur sagt þetta,“ − þó að Drottinn hafi ekki sent þá. Samt bíða þeir þess að hann láti boðskapinn rætast.
7
Hafið þið ekki séð tálsýnir og flutt fölsk spámæli þegar þið sögðuð: „Drottinn hefur sagt þetta,“ þó að ég hafi ekki talað?
8
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Þar sem þið boðið tál og ljúgið upp sýnum stend ég, Drottinn Guð, gegn ykkur.
9
Ég mun rétta út hönd mína gegn þeim spámönnum sem sjá tálsýnir og boða lygi. Þeir verða ekki í samfélagi þjóðar minnar og munu ekki færðir á skrá yfir Ísraelsmenn og skulu ekki fá að koma inn í land Ísraels. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn Guð.
10
Þeir hafa blekkt þjóð mína með því að boða heill þar sem engin heill var. Væri veggur reistur kölkuðu þeir hann.
11
Segðu við þá sem kalka: Þegar steypiregn kemur, haglél dynur og stormur skellur á honum
12
og veggurinn er hruninn, munu menn þá ekki spyrja ykkur: Hvar er nú kalkið sem þið kölkuðuð með?
13
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Ég mun láta storm skella á í heift minni og steypiregn og eyðandi hagl dynja á í bræði minni.
14
Ég mun brjóta niður vegginn sem þið kölkuðuð og jafna hann við jörðu svo að undirstaðan komi í ljós. Þegar hann hrynur munuð þið farast undir honum. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.
15
Ég mun svala heift minni á veggnum og þeim sem kölkuðu hann. Ég mun segja: Veggurinn er horfinn og þeir sem kölkuðu hann,
16
spámenn Ísraels, sem fluttu spámæli um Jerúsalem og sáu sýnir um heill handa borginni þar sem engin heill var, segir Drottinn Guð.
17
En þú, mannssonur, snúðu andliti þínu gegn dætrum þjóðar þinnar sem flytja spámæli úr eigin hjarta. Flyttu boðskap gegn þeim
18
og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Vei þeim sem sauma borða á alla úlnliði og gera fólki höfuðskýlu af hvaða stærð sem er til að veiða það. Haldið þið að þið getið veitt fólk af þjóð minni og haldið því á lífi ykkur til ávinnings?
19
Þið hafið vanhelgað mig meðal þjóðar minnar fyrir nokkra hnefa af byggi og fáeina brauðmola. Þið hafið deytt þá sem ekki áttu að deyja en þyrmt þeim sem ekki áttu að lifa með því að ljúga að þjóð minni sem hlustar á lygi.
20
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Ég mun ráðast gegn borðunum sem þið veiðið fólk með eins og fugla, ég mun rífa þá af handleggjum ykkar og sleppa lausum þeim sem þið hafið veitt eins og fugla.
21
Ég mun einnig rífa höfuðskýlurnar í burtu og frelsa þjóð mína úr greipum ykkar svo að hún verði ekki framar bráð í klóm ykkar. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.
22
Þið hafið kvalið huga hins réttláta með lygi þó að ég ætlaði ekki að kvelja hann. Hins vegar hafið þið stutt hinn guðlausa til að hverfa ekki frá villu síns vegar svo að hann lifi.
23
Þess vegna skuluð þið hvorki sjá neinar tálsýnir framar né fara með spádóma. Ég mun frelsa þjóð mína úr greipum ykkar. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48