bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 42
Ezekiel 42
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 41
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 43 →
1
Því næst fór maðurinn með mig út í ytri forgarðinn í norður. Hann leiddi mig inn í álmuna gegnt afmarkaða svæðinu og byggingunni norðan við það.
2
Hún var hundrað álnir á lengd norðan megin og fimmtíu á breidd.
3
Hún var gegnt afmarkaða svæðinu sem var tuttugu álnir á breidd og hluti af innri forgarðinum og gegnt steingólfinu sem var hluti af ytri forgarðinum. Byggingin var reist á stöllum á þremur hæðum.
4
Framan við herbergin var gangur sem sneri inn á við, tíu álnir á breidd og hundrað á lengd. Dyrnar inn í herbergin voru að norðanverðu.
5
Efstu herbergin voru styttri en herbergin á neðstu hæðinni og miðhæðinni því að stallarnir tóku nokkurt rúm.
6
Byggingin var á þremur hæðum en engar súlur voru í henni eins og súlurnar í forgörðunum. Hún var því byggð á stöllum og minnkuðu herbergin eftir því sem ofar dró frá neðstu hæð til miðhæðar.
7
Utan við álmurnar og með fram þeim var múr. Hann lá í áttina að ytri forgarðinum framan við álmurnar og var fimmtíu álnir á lengd.
8
Þar sem herbergin, sem sneru að ytri forgarðinum, voru fimmtíu álnir á lengd var allur múrinn hundrað álnir á lengd.
9
Gengið var inn í neðstu herbergin að austan þegar komið var frá ytri forgarðinum
10
við enda múrsins sem afmarkaði forgarðinn. Sunnan við afmarkaða svæðið og við bygginguna voru álmur með herbergjum.
11
Framan við þær lá gata. Þessi herbergi voru áþekk hinum sem voru norðan megin. Þau voru jafnlöng og jafnbreið og þau og á þeim voru sams konar dyr, tilhögun þeirra var eins og hurðirnar jafnmargar og í herbergjunum að norðanverðu.
12
Inngangur að dyrum suðurherbergjanna sneri í austur, við enda götunnar sem lá með fram múrnum.
13
Maðurinn sagði við mig: „Herbergin í álmunni norðan megin og í álmunni sunnan megin við afmarkaða svæðið eru heilög herbergi. Þar eiga prestarnir, sem nálgast Drottin, að neyta hinna háheilögu fórnargjafa. Þar eiga þeir að setja hinar háheilögu fórnargjafir, kornfórn, syndafórn og sektarfórn, því að þessi staður er heilagur.
14
Þegar prestarnir eru komnir þar inn mega þeir ekki ganga beint úr hinu heilaga herbergi út í ytri forgarðinn. Þeir eiga að skilja klæði sín, sem þeir hafa þjónað í, eftir í þessu herbergi því að þau eru heilög. Þegar þeir hafa klæðst öðrum fötum mega þeir fara þangað sem fólkið er.“
15
Þegar maðurinn hafði lokið við að mæla musterissvæðið innanvert leiddi hann mig út um hliðið sem snýr í austur og mældi það á alla vegu.
16
Hann mældi austurhliðina með mælistikunni, hún var fimm hundruð álnir mæld með mælistikunni. Því næst sneri hann við
17
og mældi norðurhliðina, hún var fimm hundruð álnir mæld með mælistikunni. Þá sneri hann við
18
og mældi suðurhliðina, hún var fimm hundruð álnir mæld með mælistikunni.
19
Hann sneri sér að vesturhliðinni og mældi hana, hún var fimm hundruð álnir mæld með mælistikunni.
20
Hann mældi fjórar hliðar musterissvæðisins. Umhverfis það var múrveggur, hann var fimm hundruð álnir á lengd og fimm hundruð á breidd til þess að skilja heilagt frá því sem ekki er heilagt.
← Chapter 41
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 43 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48