bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 31
Ezekiel 31
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 32 →
1
Á fyrsta degi þriðja mánaðar í ellefta árinu kom orð Drottins til mín:
2
Mannssonur, segðu við faraó, konung Egyptalands, og fylgdarlið hans: Hverjum líkist þú í veldi þínu?
3
Mikill meiður, sedrusviður, óx á Líbanon. Fagrar greinar gerðu skóginn skuggsælan, stofninn óx hátt og króna hans gnæfði hátt meðal skýjanna.
4
Vatnið jók vöxt hans, frumdjúpið hæð hans. Það lét ár sínar flæða umhverfis gróðurreit hans og veitti lækjum sínum til allra trjáa á sléttlendinu.
5
Hann varð því hærri vexti en öll trén á sléttunni. Greinunum fjölgaði, limið breiddi úr sér af öllu vatninu sem rann til hans.
6
Í greinum hans gerðu allir fuglar himins sér hreiður og undir liminu ólu öll dýr merkurinnar afkvæmi og allar stórþjóðir bjuggu í skugga þess.
7
Sedrusviðurinn varð mikilfenglegur og fagur vegna hinna löngu greina því að rót hans náði til mikilla vatna.
8
Enginn sedrusviður líktist honum í garði Guðs, kýprustréð hafði ekki jafn miklar greinar og lim platanviðarins líktist ekki limi hans. Ekkert tré í garði Guðs var jafn fagurt og hann.
9
Ég gerði hann fagran með sínu mikla limi. Öll Edenstré í garði Guðs hlutu að öfunda hann.
10
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Þar sem hann varð hávaxinn og teygði krónu sína upp á milli skýjanna gerðist hann hrokafullur vegna hæðar sinnar.
11
Því seldi ég hann hinum voldugasta leiðtoga þjóðanna í hendur. Hann fór með hann eins og hann átti skilið fyrir guðleysi sitt og ég hafnaði honum.
12
Framandi menn úr hópi grimmustu þjóða hjuggu hann niður og fleygðu honum í burt. Lim hans féll á fjöllin og alla dali og greinar hans brotnuðu í öllum gljúfrum landsins. Allar þjóðir heims flýðu úr skugga hans og létu hann eiga sig.
13
Allir fuglar himinsins bjuggu um sig á föllnum stofninum og öll dýr merkurinnar komu sér fyrir í limi hans.
14
Þess vegna skulu engin tré við vatnið verða hávaxin framar og teygja krónur sínar upp á milli skýjanna. Engin tré, sem drekka vatn, skulu ná hæð þeirra því að þau verða öll ofurseld dauðanum. Þau munu fara niður til undirheimanna, til þeirra manna sem grafnir hafa verið.
15
Svo segir Drottinn Guð: Daginn sem sedrusviðurinn fór niður til ríkis hinna dauðu lét ég frumdjúpið harma hann og hylja. Ég hélt aftur af kvíslum þess og hinum miklu vötnum var haldið í skefjum. Vegna hans klæddi ég Líbanon í sorgarbúning og öll trén á sléttlendinu visnuðu.
16
Ég lét þjóðirnar nötra við dynkinn af falli hans þegar ég sendi hann til ríkis hinna dauðu ásamt þeim sem fara niður í gryfjuna. En í undirheimum létu öll Edenstré huggast, ágætustu tré Líbanons, öll trén sem drekka vatn.
17
Þau fóru ásamt sedrusviðnum til undirheima, til þeirra sem féllu fyrir sverði, ásamt niðjum sínum, og bjuggu áður meðal þjóðanna í skugga hans.
18
Hvaða Edenstré varð jafnað við þig að stærð og glæsileika? Þér verður steypt ásamt Edenstrjánum til undirheima. Þú munt liggja innan um óumskorna og vopnbitna. Þannig fer fyrir faraó og allri hans dýrð, segir Drottinn Guð.
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 32 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48