bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 7
Ezekiel 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 8 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, svo segir Drottinn Guð við land Ísraels: Endir er kominn, endirinn fyrir fjögur horn heimsins.
3
Nú eru endalok þín komin, ég sleppi lausri heift minni gegn þér og dæmi þig samkvæmt hegðun þinni og launa þér svívirðingar þínar.
4
Ég mun hvorki líta þig vægðarauga né sýna þér miskunn, heldur mun ég launa þér breytni þína og svívirðingar þínar skulu vera mitt á meðal þín. Þá skuluð þér skilja að ég er Drottinn.
5
Svo segir Drottinn Guð: Ógæfa á ógæfu ofan, hún er yfir dunin.
6
Endir er kominn, endalokin orðin, endalokin komin yfir þig.
7
Nú er komið að þér, íbúi landsins, tíminn er kominn, dagurinn í nánd.
8
Brátt úthelli ég reiði minni yfir þig og svala heift minni á þér. Ég mun dæma þig eftir breytni þinni og launa þér svívirðingar þínar.
9
Ég mun hvorki líta þig vægðarauga né sýna þér miskunn því að ég mun launa þér breytni þína og svívirðingar þínar skulu vera mitt á meðal þín. Þá munuð þér skilja að ég, Drottinn, er sá sem slær.
10
Dagurinn er kominn, hann er kominn. Endalokin komin, ranglætið blómstrar, hrokinn vex,
11
ofbeldið eykst, verður svipa guðlausra. Enginn þeirra verður eftir, ekkert eftir af auði þeirra, ekkert af vegsemd þeirra og dýrð.
12
Tíminn er kominn, dagurinn í nánd. Kaupandinn gleðjist ekki, og seljandinn syrgi ekki því að reiði kemur yfir allan landslýð.
13
Seljandinn kemst ekki aftur til hins selda þó að báðir haldi lífi því að heiftin kemur yfir allan landslýð, hún snýr ekki aftur, og sá sem lifir í synd sinni mun ekki lífi halda.
14
Hornið er þeytt, allir herbúnir en enginn heldur til orrustu því að reiði mín kemur yfir allan landslýð.
15
Sverð er úti fyrir, inni drepsótt og hungur. Sá sem er úti á akri skal falla fyrir sverði. Sá sem er inni í borginni verður hungri og drepsótt að bráð.
16
Komist nokkrir þeirra undan hafast þeir við í fjöllunum eins og daladúfurnar, þeir munu allir deyja, hver þeirra vegna syndar sinnar.
17
Allar hendur verða máttvana og öll kné kikna.
18
Þeir gyrða sig hærusekk og skelfingin hylur þá, hvert andlit roðnar af skömm og hvert höfuð er nauðrakað.
19
Þeir fleygja silfri sínu á göturnar, gullið verður að skarni. Silfur þeirra og gull fær ekki bjargað þeim á degi reiði Drottins. Þeir geta ekki satt hungur sitt, ekki fyllt kvið sinn, því að þetta varð þeim hrösunarhella.
20
Þeir hreyktu sér af dýrmætu skarti sínu og gerðu sér úr því andstyggileg skurðgoð sem vekja viðbjóð. Því hef ég gert þetta allt að skarni fyrir þeim
21
og sel það framandi mönnum í hendur sem ránsfeng og hinum guðlausu á jörðinni sem herfang, þeir munu vanhelga það.
22
Ég mun snúa augliti mínu frá þeim og þeir munu vanhelga fjársjóð minn. Ræningjar munu brjótast inn í hann, vanhelga hann
23
og vinna spellvirki því að landið er fullt af blóðsúthellingum og borgin af ofbeldisverkum.
24
Ég mun stefna hingað verstu þjóðum sem munu kasta eign sinni á hús þeirra. Ég mun binda enda á hroka hinna voldugu og helgidómar þeirra verða vanhelgaðir.
25
Skelfing kemur, menn leita friðar án árangurs.
26
Ógæfa á ógæfu ofan, ein ótíðindin fylgja öðrum. Þeir munu leita vitrunar hjá spámanni en leiðsögnin bregst prestinum og ráðgjöfin öldungunum.
27
Konungurinn mun syrgja, höfðinginn klæðast skelfingu, landsbúum fallast hendur af ótta. Ég launa þeim breytni þeirra og dæmi þá eins og þeir hafa dæmt og þeir skulu skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48