bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 19
Ezekiel 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 20 →
1
Flyttu harmljóð um höfðingja Ísraels
2
og segðu: Hvílík ljónynja var móðir þín meðal ljónanna. Hún lá meðal ungljóna, ól upp ljónshvolpa sína.
3
Hún kom einum þeirra upp, hann varð fullvaxta ungljón, lærði að rífa í sig bráð, hann át menn.
4
Þá voru framandi þjóðir kvaddar saman gegn honum, hann var fangaður í gryfju þeirra. Þær drógu hann með krókum til Egyptalands.
5
Þegar ljónynjan skildi að von hennar hafði brugðist, var orðin að engu, valdi hún annan af hvolpum sínum, ól önn fyrir honum uns hann varð ungljón.
6
Hann eigraði um meðal ljóna, varð fullvaxta ungljón, lærði að rífa í sig bráð, hann át menn.
7
Hann braut virki þeirra og lagði borgir þeirra í rústir svo að landið og íbúar þess stirðnuðu af skelfingu við öskur hans.
8
Þá voru þjóðir sendar gegn honum frá löndunum umhverfis, þær þöndu út net fyrir hann, hann var fangaður í gryfju þeirra.
9
Með krókum var hann settur í búr og færður til konungsins í Babýlon. Honum var fleygt í svarthol svo að öskur hans heyrðist ekki framar á fjöllum Ísraels.
10
Móðir þín var eins og vínviður sem gróðursettur var við vatn. Hann bar margar greinar og ríkulegan ávöxt því að hann hafði nóg vatn.
11
Greinar hans urðu sterkar, þær mátti hafa í veldissprota. Vöxtur hans varð mikill, hann gnæfði hátt meðal skýja og sást langt að, svo hár var hann og greinarnar margar.
12
En hann var rifinn upp í heift og fleygt til jarðar. Austanvindurinn þurrkaði ávexti hans og þeir voru slitnir af honum. Hinar voldugu greinar skrælnuðu, eldur gleypti þær.
13
Nú er hann gróðursettur í eyðimörk, í þurru og þyrstu landi.
14
Eldur blossaði út úr stofninum og gleypti bæði greinar og ávöxt svo að engin sterk grein varð eftir sem hafa mætti í veldissprota.
15
Þetta er harmljóð og verður harmljóð.
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48