bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 27
Ezekiel 27
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 28 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, flyttu harmljóð um Týrus.
3
Segðu þetta við Týrus, sem liggur við Ægisdyr, við kaupkonuna sem verslar við framandi þjóðir á fjarlægum eyjum: Svo segir Drottinn Guð: Týrus, þú sagðir: „Fegurð mín er fullkomin.“
4
Land þitt er úti í miðju hafi, þeir sem reistu þig fullkomnuðu fegurð þína.
5
Úr kýprusviði frá Senírfjöllum voru þiljur þínar gerðar á bæði borð, sedrusviður, sóttur frá Líbanon, var hafður í sigluna.
6
Úr hæstu eikum Basans voru árar gerðar, þilfarið gert úr fílabeini og kýprusviði frá eyjum Kitta.
7
Seglið var glitofið lín frá Egyptalandi, það var auðkenni þitt, sóltjöld þín úr bláum purpura og rauðum frá ströndum Elísa.
8
Höfðingjar frá Sídon og Arvad voru ræðarar þínir, þínir hæfustu menn, Týrus, voru um borð, þeir voru hásetar þínir.
9
Öldungar frá Gebal og hagleiksmenn þaðan voru smiðir um borð. Öll hafskip og áhafnir þeirra komu til þín til að versla við þig.
10
Menn frá Paras, Lúd og Pút gegndu þjónustu í her þínum, þeir hengdu upp skjöld og hjálm í þér, það var prýði þín.
11
Menn frá Arvad stóðu á múrum þínum ásamt þínum eigin her og Gammadar voru í turnum þínum. Þeir hengdu skildi sína á múra þína hringinn í kring og fullkomnuðu glæsileik þinn.
12
Tarsis verslaði í umboði þínu vegna auðs þíns. Tarsismenn seldu vörur þínar fyrir silfur, járn, tin og blý.
13
Javan, Túbal og Mesek versluðu í umboði þínu. Þeir létu þræla og eir fyrir vörur þínar.
14
Frá Bet Tógarma voru þér fengnir dráttarhestar, gæðingar og múldýr fyrir vörur þínar.
15
Ródosbúar versluðu í umboði þínu. Margir á fjarlægum eyjum voru kaupmenn í þjónustu þinni og guldu þér í fílabeini og íbenviði.
16
Edóm verslaði í umboði þínu vegna fjölbreyttrar framleiðslu þinnar. Edómítar seldu vörur þínar fyrir granatsteina, rauðan purpura, glitvefnað, býssuslín, kóralla og rúbína.
17
Júda og Ísrael voru kaupmenn þínir og seldu hveiti frá Minnít, vax, hunang, olíu og balsam fyrir varning þinn.
18
Damaskus verslaði í umboði þínu með fjölbreytta framleiðslu þína vegna auðs þíns. Menn þaðan seldu vörur þínar fyrir vín frá Helbón og ull frá Sahar.
19
Frá Úsal fékkstu smíðajárn, kanel og reyr fyrir vörur þínar.
20
Dedan átti viðskipti við þig með söðuláklæði.
21
Arabía og allir höfðingjarnir frá Kedar versluðu í umboði þínu og greiddu þér með lömbum, hrútum og geitum.
22
Menn frá Saba og Raema voru kaupmenn þínir og létu úrvalssmyrsl, eðalsteina og gull fyrir vörur þínar.
23
Haran, Kanne og Eden og kaupmennirnir frá Saba, Assýríu og allri Medíu versluðu við þig.
24
Þeir versluðu fyrir þig með skrautklæði, bláar purpurakápur, glitvefnað og þétt fléttuð reipi.
25
Tarsisskip voru úlfaldalestir þínar og fluttu vörur þínar. Þú varst fullfermd og mjög glæsileg úti á rúmsjó.
26
Ræðarar þínir komu þér út á reginhaf, austanstormurinn braut þig í spón úti á rúmsjó.
27
Auður þinn, verslunarvörur og annar varningur, hásetar þínir og stýrimenn, smiðirnir sem gerðu við glufurnar og þeir sem versluðu með vörur þínar, allir hermennirnir sem þú fluttir, allur mannfjöldinn um borð, sökk í djúp hafsins daginn sem þú fórst.
28
Við neyðaróp sjómanna þinna skjálfa strendurnar.
29
Allir sem knýja árar flýja skip sitt, stýrimenn, allir hásetar á hafinu ganga á land.
30
Þeir hefja upp rödd sína og gráta beisklega, ausa mold á höfuð sér, velta sér á jörðinni.
31
Þeir raka á sig skalla vegna þín og gyrðast hærusekk, gráta beisklega yfir þér í sárri sorg.
32
Í sorg sinni hefja þeir upp harmljóð um þig, flytja sorgaróð vegna þín: „Hver er sem Týrus úti á reginhafi?“
33
Þegar varningur þinn kom af hafi mettaðir þú margar þjóðir. Þú auðgaðir konunga jarðarinnar með auði þínum og verslunarvörum.
34
Nú liggur þú brotin í spón í sjónum, í djúpi hafsins. Varningur þinn og allur mannafli þinn sökk með þér.
35
Allir sem búa á ströndunum skelfast yfir þér, hárin rísa á höfði konunganna, andlit þeirra eru afskræmd.
36
Umboðsmenn þínir meðal þjóðanna hnussa við þér. Endalok þín skelfa, þú ert með öllu horfin.
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 28 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48