bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 30
Ezekiel 30
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 31 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, spá þú og seg: Svo segir Drottinn Guð: Grátið og kveinið yfir þessum degi.
3
Því að dagurinn er í nánd, dagur Drottins er í nánd, dagur dimmra skýja. Hann verður endadægur þjóðanna.
4
Sverð kemur gegn Egyptalandi og Kús tekur að nötra þegar hinir vegnu falla í Egyptalandi og fjársjóðir landsins verða teknir og grunnmúrar þess jafnaðir við jörðu.
5
Fólkið frá Kús, Pút og Lúd, hinar ólíkustu þjóðir, fólk frá Kúta og fólk frá landinu, sem ég gerði sáttmála við, mun falla fyrir sverðinu ásamt þeim.
6
Svo segir Drottinn: Þeir sem styðja Egypta munu falla, hið mikilláta veldi þeirra mun hrapa. Frá Migdól til Sýene munu þeir falla fyrir sverði, segir Drottinn Guð.
7
Egyptaland verður auðn meðal annarra eyddra landa og borgir þess verða meðal borga í rústum.
8
Þeir munu skilja að ég er Drottinn þegar ég legg eld að Egyptalandi og allir stuðningsmenn þess farast.
9
Á þeim degi munu boðberar mínir halda af stað á skipum til að skelfa hina áhyggjulausu íbúa í Kús. Þeir verða gripnir skjálfta á degi Egyptalands, því að hann mun koma.
10
Svo segir Drottinn Guð: Ég mun gera dýrð Egyptalands lýða að engu með hendi Nebúkadresars, konungs í Babýlon.
11
Hann og her hans, hinar grimmustu þjóðir, verða sóttir til að eyða landið. Þeir munu draga sverð úr slíðrum gegn Egyptalandi og fylla landið vegnum mönnum.
12
Ég mun þurrka upp kvíslar Nílar og selja landið illmennum í hendur. Ég mun gereyða landið og allt, sem þar er, með höndum erlendra manna. Ég, Drottinn, hef talað.
13
Svo segir Drottinn Guð: Ég mun eyða skurðgoðunum, láta guðina í Nóf líða undir lok. Brátt verður enginn þjóðhöfðingi í Egyptalandi. Ég mun senda ótta yfir Egyptaland.
14
Ég mun eyða Patrós, leggja eld að Sóan, fullnægja refsidómum á Nó.
15
Ég mun hella heift minni yfir Sín, virki Egyptalands, og eyða dýrðinni í Nó.
16
Ég mun leggja eld að Egyptalandi, Sín mun engjast sundur og saman. Þeir munu brjóta sér leið inn í Nó og fjandmenn ráðast á Nó um hábjartan dag.
17
Ungmenni frá Ón og Píbeset munu falla fyrir sverðinu og íbúarnir munu reknir í útlegð.
18
Í Takpankes verður dagurinn dimmur þegar ég brýt þar veldissprota Egyptalands, þá mun hið mikilláta veldi þess líða undir lok, skýjaþykkni mun hylja landið og dætur þess fara í útlegð.
19
Þannig fullnægi ég refsidómnum yfir Egyptalandi, þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
20
Á sjöunda degi fyrsta mánaðar ellefta ársins kom orð Drottins til mín:
21
Mannssonur, ég hef brotið handlegg faraós, konungs í Egyptalandi. Hvorki verður bundið um hann né hann vafinn umbúðum til að græða hann og styrkja svo að hann geti aftur gripið til sverðsins.
22
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Nú held ég gegn faraó, konungi Egyptalands: Ég mun brjóta báða handleggi hans, bæði þann heila og hinn brotna, og slá sverðið úr hendi hans.
23
Ég mun tvístra Egyptum á meðal þjóðanna og dreifa þeim um löndin.
24
Ég mun styrkja handleggi konungsins í Babýlon og fá honum sverð mitt í hönd. En handleggi faraós mun ég brjóta og hann mun stynja frammi fyrir konungi Babýlonar eins og helsærðir menn.
25
Ég mun styrkja handleggi konungsins í Babýlon en handleggir faraós munu hanga máttvana. Þegar ég fæ konunginum í Babýlon sverð mitt í hendur, og hann reiðir það gegn Egyptalandi, munu þeir skilja að ég er Drottinn.
26
Ég mun tvístra Egyptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 31 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48