bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 32
Ezekiel 32
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 33 →
1
Á fyrsta degi tólfta mánaðar tólfta ársins kom orð Drottins til mín:
2
Mannssonur, hef upp harmljóð um faraó, konung Egyptalands, og segðu við hann: Þú líkist ljóni þjóðanna. Þú varst eins og krókódíll í vötnum, blést vatninu með nösum þínum, gruggaðir það með fótum þínum og æstir upp öldurnar.
3
Svo segir Drottinn Guð: Ég mun þenja net mitt yfir þig með hjálp margra þjóða sem safnast hafa saman. Þær munu draga þig upp í neti mínu.
4
Síðan kasta ég þér upp á þurrt land, fleygi þér út á bersvæði, læt alla fugla himinsins setjast að á þér, og seð öll dýr merkurinnar með þér.
5
Ég mun láta kjöt þitt á fjöllin og fylla dalina hræi þínu.
6
Ég brynni jörðinni með því sem úr þér streymir og fylli farvegina í fjöllunum blóði þínu.
7
Ég mun byrgja himininn þegar líf þitt fjarar út. Ég mun myrkva stjörnurnar, hylja sólina skýjum og tunglið mun ekki bera birtu.
8
Allan ljóma himinljósanna myrkva ég vegna þín og sendi myrkur yfir land þitt, segir Drottinn Guð.
9
Ég mun valda ókyrrð meðal margra þjóða þegar ég tilkynni fall þitt í löndum sem þú þekkir ekki.
10
Ég mun skelfa margar þjóðir þín vegna og hárin munu rísa á höfðum konunga þeirra þegar ég reiði sverð mitt gegn þeim. Þeir munu allir sem einn titra og skjálfa og óttast um líf sitt daginn sem þú fellur.
11
Því að svo segir Drottinn Guð: Sverð konungsins í Babýlon mun koma gegn þér.
12
Ég mun fella mannmergð þína með sverði hermannanna sem allir eru frá grimmustu þjóðum. Þeir munu eyða stolti Egypta og allri dýrð þeirra verður tortímt.
13
Ég mun eyða öllu kvikfé þeirra við hin miklu vötn og hvorki mun mannsfótur grugga þau framar né klaufir nokkurrar skepnu.
14
Þá læt ég gruggið í vötnum þeirra setjast og læt fljót þeirra streyma sem olíu, segir Drottinn Guð.
15
Þegar ég geri Egyptaland að eyðimörk og það verður svipt gnægtum sínum, þegar ég felli alla sem þar búa, munu þeir skilja að ég er Drottinn.
16
Þetta er harmljóð og skal flutt sem harmljóð. Dætur þjóðanna skulu syngja það sem harmljóð, þær skulu syngja það um Egyptaland og alla dýrð þess, segir Drottinn Guð.
17
Á fimmtánda degi fyrsta mánaðar í tólfta árinu kom orð Drottins til mín:
18
Mannssonur, harma þú dýrð Egyptalands og sendu hana niður til þjóðanna. Sendu hana niður í undirheima, til þeirra sem grafnir eru.
19
Berðu af einhverjum að fegurð? Farðu niður og leggstu hjá hinum óumskornu.
20
Þeir munu falla innan um hina vopnbitnu.
21
Hinir sterku kappar tala við Egyptaland og bandamenn þess mitt úr ríki dauðra og segja: „Hinir óumskornu, hinir vopnbitnu, fóru niður og lögðust fyrir.“
22
Þarna er Assúr og allt hans lið, umhverfis hann eru grafir hans. Þeir voru allir reknir í gegn, féllu fyrir sverði.
23
Honum var fengin gröf í hyldýpinu, lið hans er umhverfis gröf hans. Þeir voru allir reknir í gegn, féllu fyrir sverði, þeir sem breiddu út skelfingu á landi lifenda.
24
Þarna er Elam og allt hans lið umhverfis gröf hans. Þeir voru allir reknir í gegn, féllu fyrir sverði. Þeir fóru óumskornir til undirheima. Þeir sem breiddu út skelfingu á landi lifenda, þeir bera nú skömm sína ásamt þeim sem grafnir voru.
25
Elam og öllu liði hans var fengin hvíla meðal þeirra sem reknir voru í gegn. Umhverfis hann eru grafir þeirra, allra hinna óumskornu sem voru lagðir sverði og breiddu út skelfingu á landi lifenda. Þeir bera nú skömm sína ásamt þeim sem grafnir voru. Þeim var komið fyrir innan um vopnbitna menn.
26
Þarna eru Mesek og Túbal og allt þeirra lið. Umhverfis hann eru grafir þeirra, allra hinna óumskornu sem voru lagðir sverði þó að þeir breiddu út skelfingu á landi lifenda.
27
Þeir liggja ekki hjá föllnum köppum fortíðar sem stigu herklæddir niður í undirheima og lögðu sverð sín undir höfuð sér en skildir þeirra lágu á beinum þeirra. Því að ótti við kappana hvíldi yfir landi lifenda.
28
Þú verður einnig mölbrotinn á meðal óumskorinna og munt liggja hjá þeim sem lagðir voru sverði.
29
Þarna er Edóm, konungar hans og allir höfðingjar. Þrátt fyrir hreysti sína var þeim komið fyrir innan um þá sem lagðir voru sverði. Þeir liggja hjá hinum óumskornu og þeim sem grafnir voru.
30
Þarna eru allir höfðingjar landanna í norðri og allir frá Sídon. Þeir stigu niður ásamt vopnbitnum mönnum þrátt fyrir skelfinguna sem þeir breiddu út. Þeir urðu til skammar þrátt fyrir hreysti sína. Þeir liggja óumskornir hjá þeim sem lagðir voru sverði og bera skömm sína ásamt þeim sem grafnir voru.
31
Faraó mun sjá þá og láta huggast eftir missi allrar dýrðar sinnar. Faraó og allar hersveitir hans hafa nú verið lagðir sverði, segir Drottinn Guð.
32
Því að ég hef breitt út ótta við hann á landi lifenda. Faraó og öllum hersveitum hans verður komið fyrir á meðal óumskorinna, hjá þeim sem lagðir voru sverði, segir Drottinn Guð.
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 33 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48