bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 26
Ezekiel 26
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 27 →
1
Á fyrsta degi mánaðarins á ellefta árinu kom orð Drottins til mín:
2
Mannssonur, Týrus segir um Jerúsalem: „Hlið þjóðanna er brotið. Mér hlotnast auður hennar þar sem hún liggur í rústum.“
3
Því segir Drottinn Guð: Nú held ég gegn þér, Týrus. Ég mun senda margar þjóðir gegn þér, eins og brimöldur hafsins.
4
Þær munu brjóta múra Týrusar og rífa niður turna hennar. Ég mun sópa burt jarðvegi hennar og gera hana að berri klöpp.
5
Borgin skal verða þerrireitur fyrir fiskinet úti í miðju hafi því að ég hef talað, segir Drottinn Guð. Hún verður herfang framandi þjóða.
6
En dætur hennar á meginlandinu verða vegnar með sverði. Þá munu menn skilja að ég er Drottinn.
7
Því að svo segir Drottinn Guð: Nú sendi ég Nebúkadresar, konung í Babýlon, konung konunganna, úr norðri gegn Týrus með hesta, vagna, riddara, herlið og mikinn herstyrk.
8
Hann mun fella dætur þínar á meginlandinu með sverði. Hann mun reisa umsátursvirki gegn þér, gera víggirðingu gegn þér og setja upp skjaldþök gegn þér.
9
Hann mun láta högg múrbrjóts síns dynja á múrum þínum og mölva turna þína með járnkörlum.
10
Mergð hrossa hans er slík að jóreykurinn færir þig í kaf. Dynur frá hófaskellum og vagnhjólum skekur múra þína þegar hann fer um borgarhlið þín eins og þegar haldið er inn í hálfhrunda borg.
11
Hann mun traðka stræti þín með hófum hesta sinna, fella íbúana með sverði og steypa voldugum súlum þínum til jarðar.
12
Þeir munu ræna auðæfum þínum, hirða gróðann af verslun þinni. Múra þína munu þeir rífa og brjóta niður hinar glæsilegu byggingar þínar. Þeir munu fleygja steinunum, viðunum og leirnum úr þér út í hafsauga.
13
Ég mun þagga niður söngva þína og sítarhljómur þinn mun ekki heyrast framar.
14
Ég mun gera þig að berri klöpp. Þú skalt verða þerrireitur fyrir fiskinet, þú verður aldrei endurreist því að ég, Drottinn, hef talað, segir Drottinn Guð.
15
Svo segir Drottinn Guð við Týrus: Munu eyjarnar ekki nötra við dynkinn af falli þínu og stunur helsærðra þegar blóðbaðið verður skefjalaust í borginni?
16
Þá munu allir þjóðhöfðingjar strandríkjanna stíga niður úr hásætum sínum, leggja af sér skikkjur sínar og fara úr skartklæðum sínum. Þeir munu klæðast ótta, setjast á jörðina og titra og skjálfa vegna þín.
17
Þeir munu flytja harmljóð yfir þér og segja við þig: Nú ertu eydd, horfin af höfunum, þú víðfræga borg sem varst voldug á hafinu, þú og íbúar þínir, þú sem skelfdir alla sem bjuggu þar.
18
En nú skjálfa eyjarnar á degi falls þíns. Eyjarnar í hafinu skelfast yfir afdrifum þínum.
19
Því að svo segir Drottinn Guð: Ég geri þig að rúst eins og borgirnar sem ekki eru lengur byggðar. Þegar ég læt frumdjúpið ganga yfir þig og hin miklu vötn hylja þig
20
steypi ég þér niður ásamt þeim sem fara ofan í gryfjuna til fyrri tíðar manna. Ég bý þér stað í iðrum jarðar eins og í eldfornum rústum svo að þú ríkir ekki aftur á landi lifenda.
21
Ég bý þér skelfileg endalok og þú munt ekki framar til verða. Þín verður leitað en þú finnst aldrei, segir Drottinn Guð.
← Chapter 25
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 27 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48