bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 38
Ezekiel 38
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 39 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, snúðu þér gegn Góg í landinu Magóg, stórfursta í Mesek og Túbal. Flyt spámannlegan boðskap gegn honum
3
og seg: Svo segir Drottinn Guð: Nú held ég gegn þér, Góg, stórfursti í Mesek og Túbal.
4
Ég sný þér við, kræki krókum í kjálka þér og leiði þig burt ásamt öllum þínum her, hestum og riddurum, öllum albrynjuðum. Ég leiði þetta mikla lið burt sem búið er stórum og smáum skjöldum og með brugðin sverð.
5
Menn frá Persíu, Kús og Pút eru með þeim, allir búnir skildi og hjálmi.
6
Gómer og allar hersveitir hans, einnig Bet Tógarma frá hinum fjarlægustu byggðum í norðri og allar hersveitir hans. Þér fylgja fjölmargar þjóðir.
7
Taktu vopn þín og vígbúðu þig og allan liðsafnað þinn og verið á verði fyrir mig.
8
Eftir nokkurn tíma færð þú fyrirmæli þín. Að mörgum árum liðnum kemur þú til lands sem hefur verið unnið aftur undan valdi sverðsins. Þú kemur til þjóðar sem safnað var saman frá mörgum þjóðum á fjöllum Ísraels en þau voru lengi í eyði. Þessi þjóð var leidd frá framandi þjóðum og nú býr hún öll óhult þar.
9
Þú skalt fara þangað upp eftir eins og þrumuveður, koma eins og óveðursský til að hylja landið, þú og allar hersveitir þínar og margar þjóðir.
10
Svo segir Drottinn Guð: Á þeim degi munu hugsanir koma upp í huga þér og þú munt taka að hyggja á illt
11
og segja: Ég ætla að fara upp eftir gegn óvörðu landi, ráðast á friðsamt fólk sem býr þar áhyggjulaust. Allir búa þar án varnarmúra og hafa hvorki hlið né slagbranda.
12
Þú kemur til að ræna og taka herfang, fara ránshendi um rústirnar sem byggðar eru að nýju. Þú heldur gegn fólki sem hefur verið safnað saman frá framandi þjóðum, fólki sem hefur aflað sér eigna og auðs og býr á nafla jarðar.
13
Þá mun fólk frá Saba og Dedan og umboðsmenn frá Tarsis og allir kaupmennirnir þaðan spyrja þig: „Kemur þú til að ræna og taka herfang, safnaðir þú að þér hersveitum til að ræna og taka herfang, stela silfri og gulli, ræna eignum manna og auði og komast yfir mikinn ránsfeng?“
14
Mannssonur, spáðu og segðu við Góg: Svo segir Drottinn Guð: Heldur þú ekki af stað þegar lýður minn Ísrael hefur komið sér fyrir óhultur?
15
Kemur þú ekki frá landi þínu lengst í norðri, þú og margar þjóðir með þér, allir ríðandi á hestum, mikill liðsafnaður og voldugur her?
16
Þá munt þú halda upp eftir gegn lýð mínum, Ísrael, eins og óveðursský til að hylja landið. Á hinum síðustu dögum sendi ég þig gegn landi mínu svo að þjóðirnar þekki mig þegar ég birti heilagleika minn vegna þín, Góg, fyrir augum þeirra.
17
Svo segir Drottinn Guð: Þú ert sá sem ég talaði um fyrir munn þjóna minna, spámanna Ísraels, á fyrri tímum. Þeir boðuðu á þeim dögum að ég myndi leiða þig gegn þeim.
18
En þann dag, daginn sem Góg heldur gegn landi Ísraels, mun heiftin ólga í mér segir Drottinn Guð.
19
Ég sagði í ákafa mínum, í brennandi heift minni: Á þeim degi verður gífurlegur jarðskjálfti í landi Ísraels.
20
Þá munu fiskar sjávarins og fuglar himinsins og dýr merkurinnar og öll kvikindin sem skríða á jörðinni og allir menn á jörðinni skjálfa frammi fyrir augliti mínu. Fjöllin munu klofna og hamrarnir hrynja og allir múrveggir jafnast við jörðu.
21
Ég mun bjóða út hvers kyns ógnum gegn Góg, segir Drottinn Guð, hver maður mun beita sverði mínu gegn náunga sínum.
22
Ég fullnægi refsidómi mínum yfir honum með drepsótt og blóði og steypiregni, hagli og eldi og ég helli brennisteini yfir hann og liðssveitir hans og hinar fjölmörgu þjóðir sem fylgja honum.
23
Þannig mun ég sýna að ég er mikill og heilagur og gera mig kunnan í augsýn margra þjóða. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 39 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48