bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 29
Ezekiel 29
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 30 →
1
Á tólfta degi tíunda mánaðar á tíunda árinu kom orð Drottins til mín:
2
Mannssonur, snúðu þér að faraó, konungi Egyptalands, og spáðu gegn honum og öllu Egyptalandi.
3
Segðu: Svo segir Drottinn Guð: Nú held ég gegn þér, faraó, konungur Egyptalands, þú mikli krókódíll sem liggur milli kvísla Nílar og segir: „Ég á kvíslar Nílar og bjó þær til.“
4
Ég set króka í kjálka þína, læt fiskana í fljótinu loða við hreistrið á þér, dreg þig upp úr fljótskvíslum þínum ásamt öllum fiskunum í Níl sem loða við hreistur þitt.
5
Síðan varpa ég þér út í eyðimörkina ásamt öllum fiskunum úr kvíslum þínum. Þú munt liggja úti á víðavangi og verður hvorki tekinn upp né grafinn. Ég mun gefa þig dýrum merkurinnar og fuglum himinsins að æti
6
og allir íbúar Egyptalands munu skilja að ég er Drottinn. Þú reyndist Ísraelsmönnum reyrstafur.
7
Þegar þeir gripu um þig hrökkst þú í sundur og fleiðraðir alla hönd þeirra og þegar þeir studdust við þig brotnaðir þú og þeir kiknuðu allir í mjöðmum.
8
Þess vegna segir Drottinn Guð: Ég sendi sverð gegn þér og tortími mönnum og skepnum.
9
Egyptaland skal verða eyðimörk og rústahaugur. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn. Þú hefur sagt: „Ég á Níl, ég bjó fljótið til.“
10
Þess vegna held ég nú gegn þér og kvíslum þínum og geri Egyptaland að rústum og eyðimörk frá Migdól til Sýene og að landamærum Kúss.
11
Hvorki maður né dýr munu stíga þar fæti né fara þar um og það verður óbyggt í fjörutíu ár.
12
Ég geri Egyptaland að eyðimörk innan um önnur eydd lönd og borgir landsins skulu liggja í eyði í fjörutíu ár eins og aðrar borgir í rústum. Ég mun tvístra Egyptum á meðal framandi þjóða og dreifa þeim um löndin.
13
Enn fremur segir Drottinn Guð svo: Þegar fjörutíu ár eru liðin mun ég safna Egyptum saman frá þjóðunum sem þeim var dreift á meðal.
14
Þá mun ég gerbreyta högum Egypta og flytja þá aftur til Patróshéraðs, en þaðan eru þeir. Þar munu þeir mynda lítilfjörlegt ríki,
15
lítilfjörlegra en önnur konungsríki. Það mun ekki framar hefja sig yfir aðrar þjóðir. Ég mun gera þá of fáa til að drottna yfir öðrum þjóðum.
16
Ísraelsmenn munu ekki treysta Egyptum framar og ekki minna mig oftar á sekt sína með því að fylgja þeim. Þá skulu þeir skilja að ég er Drottinn Guð.
17
Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins á tuttugasta og sjöunda árinu kom orð Drottins til mín:
18
Mannssonur, Nebúkadresar, konungur í Babýlon, hefur látið her sinn vinna stórvirki á Týrus. Hvert höfuð varð sköllótt og hver öxl varð slitin. En hvorki hann né her hans hlutu nein laun frá Týrus fyrir verkið sem þeir unnu gegn henni.
19
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Hér með gef ég Nebúkadresari, konungi í Babýlon, Egyptaland. Hann mun taka með sér fjársjóði Egypta, ræna því sem þeir hafa rænt og taka herfang þeirra herfangi og það verða laun hers hans.
20
Ég hef fengið honum Egyptaland að launum fyrir erfiðið sem hann lagði á sig fyrir mig, segir Drottinn Guð.
21
Á þeim degi læt ég Ísraelsmönnum vaxa horn og ég mun ljúka upp munni þínum meðal þeirra. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 30 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48