bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 6
Ezekiel 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 7 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, snúðu andlitinu gegn fjöllum Ísraels, flyttu boðskap gegn þeim og segðu:
3
Fjöll Ísraels, heyrið orð Drottins Guðs. Svo segir Drottinn Guð við fjöllin og hæðirnar, árfarvegina og dalina: Ég held gegn ykkur með sverði og eyði fórnarhæðum ykkar.
4
Ölturu ykkar verða lögð í rúst og reykelsisölturun brotin og ég mun fleygja föllnum mönnum úr ykkar hópi fyrir framan skurðgoð ykkar.
5
Ég mun setja lík Ísraelsmanna fyrir framan skurðgoð þeirra og dreifa beinum ykkar umhverfis ölturu ykkar.
6
Hvar sem þið búið munu borgir ykkar liggja í rúst og fórnarhæðirnar verða yfirgefnar. Þar sem ölturu ykkar verða rústir og yfirgefin verða skurðgoð ykkar brotin eða gerð útlæg, reykelsisölturun mölbrotin, verk ykkar þurrkuð út.
7
Vegnir menn munu liggja mitt á meðal ykkar. Þá skuluð þið skilja að ég er Drottinn.
8
Ég mun skilja nokkra ykkar eftir. Þegar þeir ykkar sem sluppu undan sverðinu eru komnir meðal þjóðanna og ykkur hefur verið dreift um löndin
9
munu þeir ykkar sem sluppu minnast mín á meðal þjóðanna sem þeir voru gerðir útlægir til. Þeir munu minnast mín sem hef kramið hórsek hjörtu þeirra sem sviku mig og hórsek augu þeirra sem tóku fram hjá mér með skurðgoðum sínum. Þá mun þeim bjóða við sjálfum sér vegna þeirra illverka sem þeir unnu með svívirðilegu athæfi sínu.
10
Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn og að hótanir mínar um þessa ógæfu voru ekki innantóm orð.
11
Svo segir Drottinn Guð: Sláðu saman lófunum og stappaðu með fætinum. Hrópaðu vei yfir öllum svívirðingum Ísraelsmanna. Þeir skulu falla fyrir sverði, hungri og drepsótt.
12
Sá sem er fjarri skal deyja úr drepsótt og sá sem er í nánd skal falla fyrir sverði og sá sem kemst undan heill á húfi skal deyja úr hungri. Ég mun svala reiði minni á þeim.
13
Þið munuð skilja að ég er Drottinn þegar valkestirnir liggja innan um skurðgoðin, umhverfis ölturu þeirra á öllum háum hæðum og fjallatindum, undir hverju grænu tré og hverri laufgaðri eik, alls staðar þar sem þeir færðu skurðgoðum sínum þekkan fórnarilm.
14
Ég mun rétta út hönd mína gegn þeim og gera landið að auðn og eyðimörk alls staðar þar sem þeir búa, frá eyðimörkinni og til Ríbla. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48