bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Ezekiel 28
Ezekiel 28
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 29 →
1
Orð Drottins kom til mín:
2
Mannssonur, segðu þetta við höfðingja Týrusar: Svo segir Drottinn Guð: Hjarta þitt varð svo hrokafullt að þú sagðir: „Ég er Guð. Ég bý í bústað guða í miðju hafi.“ En þú ert maður en ekki guð þótt þú héldir að þú líktist guði.
3
Víst ertu vitrari en Daníel, enginn leyndardómur er þér hulinn.
4
Þú aflaðir auðs með visku og skilningi, dróst saman gull og silfur í fjárhirslu þína.
5
Með mikilli þekkingu og verslun jókstu auðæfi þín og hjarta þitt varð þóttafullt vegna auðs þíns.
6
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Þar sem þú heldur í hjarta þínu að þú sért Guði líkur
7
sendi ég framandi þjóðir gegn þér, grimmar þjóðir. Þær draga sverð úr slíðrum gegn þinni fögru visku, vanhelga ljóma þinn.
8
Þeir senda þig niður í gryfjuna og þú hlýtur dauða hins vopnbitna úti á rúmsjó.
9
Ætlar þú enn að segja: „Ég er guð,“ frammi fyrir þeim sem svipta þig lífi? Þú ert maður, ekki guð, í höndum þeirra sem vega þig.
10
Þú hlýtur dauða óumskorinna fyrir hendi framandi manna. Ég hef talað, segir Drottinn Guð.
11
Orð Drottins kom til mín:
12
Mannssonur, flyttu harmljóð um konunginn í Týrus og segðu við hann: Svo segir Drottinn Guð: Þú varst fullkomleikinn sjálfur, fullur visku og fullkominn að fegurð.
13
Þú varst í Eden, garði Guðs, þakinn alls kyns dýrum steinum: rúbín, tópas og jaspis, krýsolít, karneol og ónyx, lapís, granat og smaragð, og skart úr gulli, hamrað og grafið, var eign þín, sett á þig daginn sem þú varst skapaður.
14
Ég gerði þig verndarkerúb, þú varst á heilögu fjalli guðanna, gekkst innan um glóandi steina.
15
Breytni þín var flekklaus frá sköpunardegi þínum þar til misgjörð fannst hjá þér.
16
Vegna verslunarumsvifa þinna fylltist þú ofríki svo að þú syndgaðir. Þá rak ég þig, hinn verndandi kerúb, og rak þig af guðafjalli, burt frá hinum glóandi steinum.
17
En fegurð þín fyllti þig hroka og þú spilltir visku þinni vegna ljóma þíns. Ég fleygði þér til jarðar, fyrir fætur konunga, svo að þeir gætu notið þess að horfa á þig.
18
Þú vanhelgaðir helgidóma þína með þinni miklu sekt og óheiðarlegum viðskiptum. Ég lét því eld brjótast út í þér sem eyddi þér. Ég gerði þig að ösku á jörðinni fyrir augum allra sem horfðu á þig.
19
Allar þjóðir, sem þekktu þig, hryllti við þér. Endalok þín skelfa, þú ert með öllu horfinn.
20
Orð Drottins kom til mín:
21
Mannssonur, snúðu þér að Sídon, spáðu gegn henni
22
og segðu: Svo segir Drottinn Guð: Nú held ég gegn þér, Sídon: Ég ætla að birta dýrð mína innan múra þinna, íbúar þínir munu skilja að ég er Drottinn þegar ég fullnægi refsidómnum yfir borginni og birti heilagleika minn í henni.
23
Ég sendi drepsótt gegn henni og blóð á stræti hennar. Vegnir falla í borginni fyrir sverði sem sækir hvarvetna að. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.
24
Ísraelsmenn skulu ekki framar nístir þyrnum eða stungnir þistlum nágrannaþjóðanna sem hæðast að þeim. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn Guð.
25
Svo segir Drottinn Guð: Þegar ég safna Ísraelsmönnum saman frá þjóðunum sem þeim var dreift á meðal mun ég birta heilagleika minn vegna þeirra í augsýn þjóðanna. Þeir skulu búa í landi sínu sem ég gaf Jakobi, þjóni mínum.
26
Þar munu þeir búa óhultir, byggja hús og gróðursetja víngarða. Þeir munu vera óhultir þegar ég fullnægi refsidómum á öllum nágrönnum þeirra sem hafa fyrirlitið þá. Þeir munu skilja að ég er Drottinn, Guð þeirra.
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 29 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48