bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 11
Proverbs 11
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 12 →
1
Svikin vog er Drottni andstyggð en rétt vog er honum geðfelld.
2
Komi hroki kemur og smán en hjá hinum hógværu er viska.
3
Ráðvendni hreinskilinna leiðir þá en undirferli lygarans tortímir honum.
4
Lítt gagna auðæfi á degi reiðinnar en réttlæti frelsar frá dauða.
5
Réttlæti hins ráðvanda gerir veg hans sléttan en hinn rangláti hrasar um eigin illsku.
6
Réttlæti hinna hreinskilnu frelsar þá en lygarar ánetjast eigin græðgi.
7
Í dauðanum brestur von hins rangláta og væntingar illvirkjans bregðast.
8
Hinn réttláti frelsast úr nauðum, hinn rangláti kemur í hans stað.
9
Með orðum tortímir hinn rangláti náunga sínum en þekking hinna réttlátu bjargar þeim.
10
Borgin fagnar gæfu réttlátra og þegar ranglátir menn farast gjalla gleðióp.
11
Blessun hinna réttsýnu reisir borgina en orð ranglátra steypa henni.
12
Óvitur maður sýnir náunga sínum fyrirlitningu en vitur maður þegir.
13
Rógberinn ljóstrar upp leyndarmáli en hinn þagmælski virðir trúnað.
14
Án stjórnar tortímist herinn en séu ráðgjafar margir getur allt farið vel.
15
Illa fer fyrir þeim sem gengur í ábyrgð fyrir annan mann, sá sem forðast handsöl er óhultur.
16
Yndisleg kona hlýtur sæmd, hinn ötuli hlýtur auð.
17
Kærleiksríkur maður vinnur sjálfum sér gagn, harðlyndur maður vinnur sér mein.
18
Hinn rangláti eignast sýndarávinning en sá sem réttlæti sáir hlýtur ósvikin laun.
19
Að stunda réttlæti leiðir til lífs, að elta hið illa leiðir til dauða.
20
Fláráðir eru Drottni andstyggð en hinir vammlausu yndi hans.
21
Víst er að hinn illi sleppur ekki við refsingu en hinir réttlátu eru óhultir.
22
Eins og gullhringur í svínstrýni er fríð kona sem enga háttvísi kann.
23
Óskir hinna réttlátu leiða aðeins til góðs en vonir ranglátra kalla yfir sig reiðidóm.
24
Einn miðlar öðrum af örlæti og eignast æ meira, annar heldur í meira en rétt er og verður þó enn snauðari.
25
Örlátur maður hlýtur ríkulega umbun og sá sem gefur öðrum að drekka fær þorsta sínum svalað.
26
Fólkið formælir þeim sem heldur í kornið en blessun kemur yfir þann sem býður það falt.
27
Sá sem leitar góðs leitar velþóknunar en sá sem sækist eftir illu verður fyrir því.
28
Sá fellur sem treystir á auð sinn en hinir réttlátu þrífast sem trjálauf.
29
Sá sem spillir heimili sínu mun erfa vindinn en heimskinginn verður þræll hins vitra.
30
Ávöxtur réttlætisins er lífstré og hinn vitri eignast hylli manna.
31
Fái hinn réttláti endurgjald hér á jörðu, hvað þá um hinn rangláta og syndarann?
← Chapter 10
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 12 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31