bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 31
Proverbs 31
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
1
Orð Lemúels konungs í Massa sem móðir hans kenndi honum:
2
Hvað á ég að segja þér, sonur minn, sonur kviðar míns, sonur áheita minna?
3
Gefðu konum ekki kraft þinn, þrek þitt þeim sem táldraga konunga.
4
Ekki sæmir það konungum, Lemúel, ekki sæmir það konungum að drekka vín eða höfðingjum áfengur drykkur.
5
Þeir kynnu að drekka og gleyma lögunum og ganga á rétt hinna fátæku.
6
Gefið áfengan drykk hinum lánlausa og vín þeim sem er beiskur í lund.
7
Drekki þeir og gleymi fátækt sinni og minnist ekki framar mæðu sinnar.
8
Ljúktu upp munni þínum fyrir hinn mállausa, fyrir málstað allra lánleysingja.
9
Ljúktu upp munni þínum, dæmdu af réttvísi, réttu hlut hinna voluðu og snauðu.
10
Dugmikla konu, hver hlýtur hana? Hún er miklu dýrmætari en perlur.
11
Hjarta manns hennar treystir henni og ekki er lát á hagsæld hans.
12
Hún gerir honum gott og ekkert illt alla ævidaga sína.
13
Hún sér um ull og hör og vinnur fúslega með höndum sínum.
14
Hún er eins og kaupförin, sækir björgina langt að.
15
Hún fer á fætur fyrir dögun, skammtar heimilisfólki sínu og segir þernum sínum fyrir verkum.
16
Fái hún augastað á akri kaupir hún hann og af eigin rammleik býr hún sér víngarð.
17
Hún gyrðir lendar sínar krafti og tekur sterklega til armleggjunum.
18
Hún finnur að starf hennar er ábatasamt, á lampa hennar slokknar ekki um nætur.
19
Hún réttir út hendurnar eftir rokknum og fingur hennar grípa snælduna.
20
Hún er örlát við bágstadda og réttir fram hendurnar móti snauðum.
21
Ekki óttast hún um heimilisfólk sitt þótt snjói því að allt heimilisfólk hennar er klætt skarlati.
22
Hún býr sér til ábreiður, klæðnaður hennar er úr baðmull og purpura.
23
Maður hennar er mikils metinn í borgarhliðunum þegar hann situr með öldungum landsins.
24
Hún býr til línkyrtla og selur þá og kaupmanninum fær hún belti.
25
Kraftur og tign er klæðnaður hennar og hún fagnar komandi degi.
26
Mál hennar er þrungið speki og ástúðleg fræðsla er á tungu hennar.
27
Hún vakir yfir því sem fram fer á heimili hennar og etur ekki letinnar brauð.
28
Börn hennar segja hana sæla, maður hennar hrósar henni:
29
„Margar konur hafa sýnt dugnað en þú tekur þeim öllum fram.“
30
Yndisþokkinn er svikull og fegurðin hverful en sú kona sem óttast Drottin á hrós skilið.
31
Hún njóti ávaxta handa sinna og verk hennar skulu vegsama hana í borgarhliðunum.
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31