bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 5
Proverbs 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 6 →
1
Sonur minn, gefðu gaum að speki minni, ljáðu eyra þitt hyggindum mínum
2
til þess að þú varðveitir mannvit og varir þínar geymi þekkingu.
3
Hunang drýpur af vörum framandi konu og munnur hennar er hálli en olía.
4
En síðar verður hún beiskari en malurt og beitt eins og tvíeggjað sverð.
5
Fætur hennar feta niður til dauðans, spor hennar liggja til heljar.
6
Hún ratar ekki á leið lífsins, brautir hennar eru á reiki og áttum hefur hún glatað.
7
Heyrið mig því, synir, og víkið ekki frá orðum mínum.
8
Leggðu leið þína langt frá henni og komdu hvergi nærri dyrum hennar
9
svo að þú gefir ekki öðrum æskuþrótt þinn og líf þitt hörðum húsbónda,
10
svo að framandi menn nærist ekki af þreki þínu og þú erfiðir í annarra húsi
11
og þú andvarpir að lokum, þegar líkami þinn og hold veslast upp,
12
og segir: „Hví fyrtist ég við leiðsögn og lét mér umvöndun í léttu rúmi liggja,
13
að ég skyldi ekki hlýða rödd kennara minna og hneigja eyra mitt til þeirra sem fræddu mig.
14
Minnstu munaði að ég rataði í harðar raunir á dómþingi safnaðarins.“
15
Drekktu vatn úr brunni þínum og ferskt vatn úr eigin lind.
16
Eiga lindir þínar að flóa út á götuna og lækir þínir út á torgin?
17
Þínar skulu þær vera og ekki falla öðrum í skaut.
18
Uppspretta þín sé blessuð og gleddu þig yfir eiginkonu æsku þinnar,
19
ástarhindinni, dádýrinu yndislega. Brjóst hennar geri þig ætíð drukkinn og ást hennar fjötri þig ævinlega.
20
Hví skyldir þú, sonur minn, láta aðra konu töfra þig og taka framandi konu í faðm þér?
21
Vegir hvers manns blasa við Drottni, hann gætir að öllum leiðum hans.
22
Misgjörðir hins óguðlega fanga hann, hann lætur fangast í snörur eigin synda.
23
Hann deyr vegna skorts á aga, heimskan stígur honum til höfuðs.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31