bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 18
Proverbs 18
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 17
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 19 →
1
Sérlyndur maður fer að eigin geðþótta og hafnar hverju hollráði.
2
Heimskinginn keppir ekki að hyggindum heldur að gera skoðanir sínar kunnar.
3
Komi illmennið kemur háðungin einnig og smáninni fylgir skömm.
4
Djúp vötn eru orð af manns munni, lind viskunnar er sem rennandi lækur.
5
Það er ekki rétt að draga taum hins rangláta og halla rétti hins saklausa í dómi.
6
Orð heimskingjans valda deilum, munnur hans býður höggunum heim.
7
Munnur heimskingjans verður honum að falli og varirnar eru lífi hans snara.
8
Sæt eru orð rógberans, þau ná til innstu fylgsna mannsins.
9
Kærulaus verkmaður er albróðir niðurrifsmannsins.
10
Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er óhultur.
11
Auður ríks manns er honum öflugt vígi og ókleifur múrveggur að hans hyggju.
12
Dramb hjartans er undanfari falls, hógværð er undanfari sæmdar.
13
Svari einhver áður en hann hlustar er það heimska hans og skömm.
14
Kjarkur styrkir menn í sjúkleika en hver fær borið dapurt geð?
15
Hjarta hins hyggna aflar sér þekkingar og eyra hinna vitru leitar þekkingar.
16
Gjöf greiðir þeim veg sem gefur og leiðir hann fram fyrir stórmenni.
17
Sá er fyrst flytur mál sitt virðist hafa á réttu að standa uns andstæðingurinn vefengir rök hans.
18
Hlutkestið bindur enda á deilu og sker úr málum hinna voldugu.
19
Hlunnfarinn bróðir er sem rammbyggt virki, deilur sem slagbrandar fyrir hallardyrum.
20
Af ávexti munnsins mettast kviðurinn, uppskera varanna seður manninn.
21
Dauði og líf eru á valdi tungunnar, sá sem henni beitir mun og þiggja ávöxt hennar.
22
Sá sem eignast konu eignast gersemi og hlýtur náðargjöf frá Drottni.
23
Hinn fátæki biður í auðmýkt en hinn ríki svarar með hörku.
24
Til eru vinir sem bregðast og til er sá vinur sem reynist tryggari en bróðir.
← Chapter 17
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 19 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31