bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 6
Proverbs 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 7 →
1
Sonur minn, hafir þú gengið í ábyrgð fyrir náunga þinn, hafir þú átt handsal við framandi mann,
2
þá hefurðu bundið þig eigin orðum, látið fangast af orðum munns þíns.
3
Gerðu þá þetta, sonur minn, til að losa þig því að þú ert kominn á vald náunga þíns: Farðu í flýti og leggðu að náunga þínum.
4
Láttu þér hvorki koma dúr á auga né blundur á brá.
5
Losaðu þig eins og dádýr úr höndum hans, eins og fugl úr höndum fuglarans.
6
Farðu til maursins, letingi. Skoðaðu háttu hans og lærðu hyggindi.
7
Þótt hann hafi engan höfðingja, engan yfirboðara eða valdsherra,
8
þá aflar hann sér samt vista á sumrin og dregur saman fæðuna um uppskerutímann.
9
Hve lengi ætlar þú að hvílast, letingi? Hvenær ætlar þú að rísa af svefni?
10
Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendur til að hvílast ögn enn.
11
Þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi, skorturinn eins og vopnaður maður.
12
Varmennið, illmennið, talar tveimur tungum,
13
deplar augunum, gefur merki með fótunum og bendir fingrunum,
14
bruggar vélráð í hjarta sínu, áformar ódæði, kveikir illdeilur.
15
Því mun ógæfan steypast yfir hann, á augabragði kemur hrun hans og ekkert er til bjargar.
16
Sex hluti hatar Drottinn og sjö eru sálu hans andstyggð:
17
hrokafullt augnaráð, lygin tunga og hendur sem úthella saklausu blóði,
18
hjarta sem bruggar fjörráð, fætur sem fráir eru til illverka,
19
ljúgvottur sem sver meinsæri og sá sem kveikir illdeilur meðal bræðra.
20
Varðveittu, sonur minn, fyrirmæli föður þíns og hafnaðu ekki viðvörun móður þinnar.
21
Festu þau á hjarta þitt, bittu þau um háls þinn.
22
Þau leiða þig hvar sem þú ferð, þegar þú hvílist vaka þau yfir þér og þegar þú vaknar, þá tala þau til þín.
23
Því að fyrirmæli eru lampi og viðvörun ljós, og hvatning og handleiðsla leið til lífsins
24
því að þær varðveita þig fyrir vondri konu, fyrir hálli tungu framandi konu.
25
Girnstu ekki fegurð hennar í hjarta þínu og láttu hana ekki ginna þig með augnaráði sínu.
26
Því að skækja fæst fyrir einn brauðhleif en ótrú kona náunga þíns sækist eftir lífi þínu.
27
Getur nokkur borið glóð í klæðafaldi án þess að föt hans sviðni?
28
Getur nokkur gengið á glóðum án þess að svíða iljar sínar?
29
Svo fer þeim sem hefur mök við konu náunga síns, sá hlýtur refsingu sem hana snertir.
30
Enginn fyrirlítur þjófinn þegar hann stelur til að seðja hungur sitt.
31
Náist hann verður hann þó að greiða sjöfalt og láta frá sér allar eigur sínar.
32
Sá sem drýgir hór með giftri konu er vitstola, hann steypir sjálfum sér í glötun.
33
Högg og smán mun hann hljóta og vansæmd hans verður aldrei afmáð.
34
Eiginmaðurinn verður hamstola af reiði og hefnd hans verður vægðarlaus,
35
hann lítur ekki við neinum bótum og hafnar gjöfum þínum hversu ríkulegar sem þær eru.
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31