bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 13
Proverbs 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 14 →
1
Vitur sonur hlýðir fyrirmælum föður síns en hinn þvermóðskufulli sinnir engri umvöndun.
2
Góðs má njóta af ávexti munnsins en svikarana þyrstir í ofbeldi.
3
Sá sem gætir munns síns varðveitir líf sitt en glötun bíður hins lausmála.
4
Sál letingjans girnist og fær ekki en sál hins eljusama mettast ríkulega.
5
Réttlátur maður hatast við lygi en hinn rangláti fremur smán og svívirðu.
6
Réttlætið verndar hinn grandvara en ranglætið verður syndaranum að falli.
7
Einn þykist ríkur en á þó ekkert, annar læst fátækur þótt auðugur sé.
8
Auðæfi manns eru lífi hans lausnargjald en enginn hótar hinum fátæka.
9
Ljós réttlátra logar skært en á lampa ranglátra slokknar.
10
Af hroka kvikna deilur en hjá ráðþægnum mönnum er viska.
11
Skjótfenginn auður hjaðnar en þeim sem safnar smátt og smátt vex auður.
12
Löng eftirvænting gerir hjartað sjúkt en uppfyllt ósk er lífstré.
13
Sá sem fyrirlítur hollráð býr sér glötun en sá sem hlítir leiðsögn hlýtur umbun.
14
Kennsla hins vitra er lífslind og forðar frá snörum dauðans.
15
Góðir vitsmunir veita hylli en vegur svikaranna leiðir í glötun.
16
Vitur maður fer að öllu með hyggindum en flónið dreifir um sig heimsku.
17
Ótrúr sendiboði færir ógæfu en trúr sendimaður lækningu.
18
Fátækt og smán hlýtur sá sem ekki skeytir um áminningar en sá sem tekur umvöndun hlýtur sæmd.
19
Uppfyllt ósk er sálinni sæt en að forðast illt er heimskingjunum andstyggð.
20
Eigðu samneyti við vitra menn, þá verður þú vitur, en illa fer þeim sem leggur lag sitt við heimskingja.
21
Óhamingjan eltir syndarana en gæfan hlotnast hinum réttlátu.
22
Góður maður lætur eftir sig arf handa börnum og barnabörnum en eigur syndarans koma í hlut hins réttláta.
23
Nýrækt fátæklinga gefur ærna fæðu en óhóf sviptir marga efnum.
24
Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn en sá sem elskar hann agar hann snemma.
25
Hinn réttláti fær nægju sína en kviður ranglátra er galtómur.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31