bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 24
Proverbs 24
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 25 →
1
Öfundaðu ekki vonda menn og láttu þig ekki langa til að vera með þeim
2
því að hjarta þeirra hyggur á ofbeldi og varir þeirra ráðgera ógæfu.
3
Af speki er hús reist og af skynsemi verður það staðfast,
4
fyrir þekkingu fyllast herbergin alls konar dýrum og fögrum gripum.
5
Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill,
6
holl ráð skalt þú hafa þegar þú heyr stríð og þar sem ráðgjöf er næg fer allt vel.
7
Viskan er afglapanum ofviða, í borgarhliðinu lýkur hann ekki upp munni sínum.
8
Þann sem leggur stund á að gera illt kalla menn varmenni.
9
Syndin er fíflslegt fyrirtæki og spottarinn er mönnum andstyggð.
10
Látir þú hugfallast á degi neyðarinnar er máttur þinn lítill.
11
Bjargaðu þeim sem leiddir eru til lífláts, þeim sem eru dæmdir til aftöku.
12
Ef þú segir: „Vér vissum það ekki,“ mun þá ekki sá sem gaumgæfir hjörtun verða þess var og sá sem vakir yfir lífi þínu vita það? Hann mun gjalda hverjum eftir verkum hans.
13
Gæddu þér á hunangi, sonur minn, því að það er gott og hunangsdroparnir eru sætir í munni.
14
Vit að þetta er sál þinni speki. Finnir þú hana áttu þér framtíð og von þín mun ekki bregðast.
15
Rangláti maður, sit ekki um bústað hins réttláta og spilltu ekki heimkynnum hans
16
því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur upp aftur en hinir ranglátu hrasa og tortímast.
17
Gleðstu ekki yfir falli óvinar þíns og hjarta þitt fagni ekki þótt hann hrasi
18
svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki og hann snúi reiði sinni frá honum.
19
Reiðstu ekki vegna illgjörðamanna, láttu ekki rangláta angra þig
20
því að vondur maður á sér enga framtíð, á lampa ranglátra slokknar.
21
Sonur minn, óttastu Drottin og konunginn, eigðu ekki samneyti við uppreisnarseggi
22
því að ógæfa þeirra ríður yfir þegar minnst varir og hver getur séð fyrir ófarir þeirra?
23
Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga: Hlutdrægni í dómi er röng.
24
Þeim sem segir við hinn seka: „Þú hefur rétt fyrir þér,“ honum formæla menn og þjóðir fordæma hann.
25
Þeim sem fella réttan úrskurð mun farnast vel, þeir munu hljóta ríkulega blessun.
26
Að veita rétt svör er eins og að gefa koss.
27
Sinntu útiverkunum og ljúktu þeim á akrinum, síðan getur þú byggt þér hús.
28
Vitnaðu ekki gegn náunga þínum án gildrar ástæðu, eða vilt þú svíkja með orðum þínum?
29
Segðu ekki: „Eins og hann gerði mér, eins ætla ég að gera honum, ég ætla að veita manninum makleg málagjöld.“
30
Ég gekk fram hjá akri letingja nokkurs, fram hjá víngarði heimsks manns.
31
Hann var allur vaxinn þistlum, hann var alþakinn netlum og steingarðurinn umhverfis hann var hruninn.
32
Ég sá þetta og veitti því athygli, horfði á það og lét mér það að kenningu verða:
33
Sofa ögn enn, blunda ögn enn, leggja saman hendurnar ögn enn til að hvílast,
34
þá kemur fátæktin yfir þig eins og ræningi og skorturinn eins og vopnaður maður.
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 25 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31