bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 2
Proverbs 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 3 →
1
Sonur minn, ef þú hlýðir orðum mínum og geymir boðorð mín hjá þér,
2
veitir spekinni athygli þína og hneigir hjarta þitt að hyggindum,
3
já, ef þú kallar á skynsemina og hrópar á hyggindin,
4
ef þú leitar að þeim eins og silfri og grefur eftir þeim eins og fólgnum fjársjóðum,
5
þá mun þér lærast að óttast Drottin og veitast þekking á Guði.
6
Drottinn veitir speki, af munni hans kemur þekking og hyggindi.
7
Hann geymir hinum ráðvöndu gæfuna og er skjöldur þeirra sem breyta grandvarlega
8
því að hann vakir yfir stígum réttlætisins og varðveitir veg sinna réttsýnu.
9
Þá skilur þú einnig hvað réttlæti er, réttur og réttsýni, skilur sérhverja braut hins góða.
10
Speki mun þá koma til hjarta þíns, og þekkingin verða sálu þinni til yndis.
11
Aðgætnin mun vernda þig og hyggindin varðveita þig
12
til þess að frelsa þig frá vegi hins illa, frá þeim mönnum sem fara með fals,
13
sem hverfa af leið einlægninnar og ganga á vegum myrkursins,
14
sem gamna sér við ódæði og fagna yfir illskuverkum,
15
sem fara hlykkjóttar leiðir og eru komnir á glapstigu í breytni sinni,
16
til að frelsa þig frá léttúðardrós og blíðmælgi hinnar framandi konu
17
sem hefur yfirgefið unnusta æsku sinnar og gleymt sáttmála Guðs síns,
18
húsi hennar hallar til dauðans og brautir hennar liggja niður til framliðinna,
19
þeir sem inn til hennar fara snúa ekki aftur og aldrei ná þeir aftur á lífsins stigu,
20
til þess að þú gangir á vegi góðra manna og haldir þig á leið réttlátra.
21
Hinir hreinlyndu munu byggja landið og hinir ráðvöndu verða þar áfram.
22
En hinir ranglátu verða upprættir úr landinu og hinum svikulu verður tortímt.
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31