bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 17
Proverbs 17
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 18 →
1
Betri er þurr brauðbiti í næði en veisla í húsi fullu af deilum.
2
Hygginn þræll mun drottna yfir spilltum syni og taka erfðahlut með bræðrunum.
3
Deiglan er fyrir silfrið og bræðsluofninn fyrir gullið en Drottinn prófar hjörtun.
4
Illmennið ljær illmælginni eyra, lygarinn hlýðir á róginn.
5
Sá sem hæðir fátækling óvirðir skapara hans, sá sem hlakkar yfir ógæfu mun svara til saka.
6
Barnabörnin eru kóróna öldunganna og foreldrarnir eru sæmd barnanna.
7
Ekki hæfa heimskum manni stóryrði og lygin hæfir enn síður göfugum manni.
8
Mútan er sem töfragripur þeim er hana þiggur, hvarvetna kemur hann sínu fram.
9
Sá sem breiðir yfir bresti annars leitar vinfengis en sá sem bregst trúnaði veldur vinaskilnaði.
10
Ávítur fá meira á hygginn mann en hundrað högg á heimskingja.
11
Illvirkinn hyggur á uppreisn en óvæginn sendiboði verður sendur gegn honum.
12
Betra er að mæta birnu sem svipt er húnum sínum en heimskingja í flónsku hans.
13
Launi maður gott með illu víkur ógæfan aldrei frá húsi hans.
14
Þegar deila kviknar er sem tekin sé úr stífla, láttu hana því niður falla áður en sennan hefst.
15
Að sýkna sekan og sakfella saklausan, hvort tveggja er Drottni andstyggð.
16
Hvað stoða peningar í hendi heimskingjans til þess að kaupa speki þar sem vitið er ekkert?
17
Vinur lætur aldrei af vináttu sinni, í andstreymi reynist hann sem bróðir.
18
Fávís er sá sem handsalar fyrir náunga sinn og gengur í ábyrgð fyrir hann.
19
Sá sem ann þrætum sækir í yfirsjón, sá sem gerir þröskuld sinn háan hnýtur um hann.
20
Hinn meinfýsni öðlast enga gæfu og sá sem fer með lygar ratar í vanda.
21
Það er mæða að geta af sér heimskingja og faðir glópsins fagnar ekki.
22
Glatt hjarta veitir góða heilsubót en dapurt geð tærir beinin.
23
Hinn rangláti dregur fram mútur á laun til að halla réttinum.
24
Hygginn maður hefur viskuna fyrir augum sér en augu heimskingjans rása með himinskautum.
25
Heimskur sonur er föður sínum til ama og angur konunni sem ól hann.
26
Að refsa saklausum er ekki lofsvert, né heldur að berja á göfugmennum.
27
Hygginn maður er orðvar og skynsamur maður er fáorður.
28
Jafnvel heimskinginn virðist vitur, þegi hann, og skynsamur, loki hann vörum sínum.
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 18 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31