bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 7
Proverbs 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 8 →
1
Sonur minn, varðveittu orð mín og hugfestu fyrirmæli mín.
2
Varðveittu fyrirmæli mín, því að þá munt þú lifa, og leiðsögn mína eins og sjáaldur auga þíns.
3
Bind þau á fingur þína og skráðu þau á spjald hjarta þíns.
4
Segðu við spekina: „Þú ert systir mín,“ og kallaðu skynsemina vinkonu
5
svo að þær varðveiti þig fyrir hinni framandi konu, hinni blíðmálgu konu.
6
Út um gluggann á húsi mínu skimaði ég milli rimlanna
7
og sá þar meðal sveinanna ungan og vitstola mann.
8
Hann kom að götuhorni og fetaði leiðina að húsi hennar,
9
í rökkrinu, að kvöldi dags, um miðja nótt og í niðdimmu.
10
Kona gekk til móts við hann, klædd sem skækja og undirförul í hjarta,
11
eirðarlaus óhemja er hún og hefst aldrei við heima,
12
hún er ýmist á götunum eða á torgunum og liggur í leyni við hvert horn,
13
þrífur í hann og kyssir hann og segir í blygðunarleysi:
14
„Ég átti að færa heillafórn, í dag hef ég goldið heit mitt.
15
Þess vegna fór ég út að finna þig til þess að leita þín, og hef nú fundið þig.
16
Ég hef búið rúm mitt ábreiðum, marglitum ábreiðum úr egypsku líni.
17
Myrru, alóe og kanel hef ég stökkt á hvílu mína.
18
Komdu, við drekkum okkur ástdrukkin, njótum ásta fram á morgun.
19
Maðurinn minn er að heiman, hann er farinn í langferð.
20
Peningapyngjuna tók hann með sér, hann kemur ekki heim fyrr en í tunglfyllingu.“
21
Hún tælir hann með fortölum og ginnir hann með blíðmælgi.
22
Hann fer rakleiðis á eftir henni eins og naut á leið til slátrunar, eins og hjörtur sem anar í netið
23
uns örin smýgur gegnum lifur hans, eins og fuglinn hraðar sér í snöruna og veit ekki að líf hans er í veði.
24
Þér yngismenn, hlýðið því á mig og gefið gaum að orðum mínum.
25
Láttu ekki hjartað tælast á leið hennar, villstu ekki inn á götur hennar.
26
Marga hefur hún sært ólífissári og fórnarlömb hennar eru óteljandi.
27
Hús hennar er helvegur niður til heimkynna dauðans.
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31