bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 19
Proverbs 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 20 →
1
Betri er fátækur maður og ráðvandur en sá sem er flár í orðum og heimskur.
2
Kapp er best með forsjá og sá hrasar sem hraðar sér.
3
Flónska mannsins eyðir efnum hans en hjarta hans kennir Drottni um.
4
Auður fjölgar vinum en fátækum manni bregst vinur.
5
Falsvotti verður ekki látið órefsað, sá sem fer með lygar kemst ekki undan.
6
Margir smjaðra fyrir tignarmanninum, allir eru vinir hins örláta.
7
Allir bræður hins snauða fyrirlíta hann, hve miklu fremur forðast þá vinir hans hann.
8
Sá sem öðlast skilning vinnur sér mest gagn, sá sem ann skynseminni hlýtur hamingju.
9
Falsvotti verður ekki látið órefsað og sá sem fer með lygar tortímist.
10
Sællífi hæfir ekki heimskum manni, hvað þá þræli að drottna yfir höfðingjum.
11
Það er viska að vera seinn til reiði og sæmd að láta rangsleitni ekki á sig fá.
12
Reiði konungs er eins og ljónsöskur en hylli hans sem dögg á grasi.
13
Heimskur sonur steypir föður sínum í glötun, konuþras er sem sífelldur þakleki.
14
Hús og auður er arfur frá feðrunum en hyggin kona er gjöf frá Drottni.
15
Letin svæfir þungum svefni og iðjuleysingjann mun hungra.
16
Sá sem hlýðir lögmálinu varðveitir líf sitt en sá deyr sem ekki hefur gát á vegum sínum.
17
Sá lánar Drottni sem líknar fátækum, hann mun endurgjalda honum.
18
Agaðu son þinn meðan enn er von, gættu þess að gera ekki út af við hann.
19
Hinn skapbráði mun hljóta refsingu, reynir þú að bjarga honum gerir þú illt verra.
20
Hlýddu ráðum og taktu umvöndun svo að þú verðir vitur að lokum.
21
Mörg er ráðagerð mannshjartans en áform Drottins standa.
22
Maðurinn þráir miskunnarverk og betri er fátækur maður en lygari.
23
Að óttast Drottin leiðir til lífs, þá hvílast menn mettir og óhultir.
24
Latur maður dýfir hendinni ofan í skálina en nennir ekki að bera hana upp að munni sér.
25
Sláir þú spottarann verður hinn fávísi hygginn, sé vandað um við skynsaman mann vex hann að viti.
26
Sá sem misþyrmir föður sínum og rekur burt móður sína, sá sonur fremur smán og óhæfu.
27
Sonur minn, hættu að hlýða á umvöndun og þú fjarlægist orð þekkingarinnar.
28
Gagnslaust vitni hæðir réttinn og illkvittni býr í munni ranglátra.
29
Spottarar eiga refsingar í vændum og bök heimskingjanna verða barin.
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31