bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Proverbs 21
Proverbs 21
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 22 →
1
Hjarta konungsins er sem lækir í hendi Drottins, hann sveigir þá hvert sem honum þóknast.
2
Maðurinn telur alla hætti sína rétta en Drottinn vegur hjörtun.
3
Að ástunda réttlæti og rétt er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.
4
Drembilát augu og hrokafullt hjarta, lampi ranglátra er syndin.
5
Áform hins iðjusama færa arð en hroðvirkni endar í örbirgð.
6
Fjársjóðir, fengnir með lygum, eru sem svipull vindblær og snörur dauðans.
7
Ráðríki ranglátra feykir þeim burt því að þeir hafna réttlátri breytni.
8
Hlykkjótt er leið hins seka en verk hins hreina eru vammlaus.
9
Betri er dvöl í horni á húsþaki en sambúð við þrasgjarna konu.
10
Hinn rangláti girnist illt, náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.
11
Sé spottaranum refsað verður hinn fávísi hygginn og sé vitur maður fræddur vex hann að viti.
12
Hinn réttláti fylgist með húsi hins rangláta og steypir óguðlegum í ógæfu.
13
Sá sem daufheyrist við kveini hins fátæka mun sjálfur kalla og ekki fá bænheyrslu.
14
Gjöf á laun sefar reiði og umbun í leyni ákafa bræði.
15
Réttlátum manni er gleði að gera það sem rétt er en illvirkjum er það skelfing.
16
Sá maður sem villist af vegi viskunnar mun brátt hvílast í samneyti framliðinna.
17
Öreigi verður sá sem sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu verður ekki ríkur.
18
Hinn rangláti er lausnargjald hins réttláta og svikarinn kemur í stað hinna vammlausu.
19
Betra er að búa í eyðimörk en með þrasgjarnri og geðillri konu.
20
Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra en heimskur maður sólundar því.
21
Sá sem ástundar réttlæti og kærleika öðlast líf, velgengni og heiður.
22
Vitur maður vann borg kappanna og reif niður vígið sem hún treysti á.
23
Sá sem gætir munns síns og tungu forðar sjálfum sér frá nauðum.
24
Sá sem er hrokafullur og dramblátur kallast spottari, hann lætur stýrast af skefjalausum hroka.
25
Óskir letingjans verða honum að falli, hendur hans vilja ekki vinna,
26
langanir fylla hug hans daglangt en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.
27
Sláturfórn hins rangláta er Drottni andstyggð, einkum sé hún færð af illum ásetningi.
28
Falsvottur mun tortímast en sá sem hlustar grannt er vitnisbær.
29
Illmennið setur upp þóttafullan svip en hinn vammlausi hyggur að háttum sínum.
30
Engin viska, engin skynsemi, engin ráð eru til gegn Drottni.
31
Hesturinn er búinn til orrustudagsins en sigurinn er í hendi Drottins.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31