bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 10
Jeremiah 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 11 →
1
Hlustið á orðin sem Drottinn talar til yðar, Ísraels ætt.
2
Svo segir Drottinn: Farið ekki að siðum þjóðanna. Óttist ekki himintáknin þótt þjóðirnar óttist þau.
3
Því að það sem aðrar þjóðir óttast er aðeins vindgustur, aðeins trjástofn höggvinn í skógi, handaverk hagleiksmanna gert með eggjárni,
4
skreytt silfri og gulli, fest með nöglum og hamri svo það velti ekki um koll.
5
Guðamyndirnar eru eins og fuglahræður í melónugarði. Þær geta ekki talað, þær þarf að bera því að þær geta ekki gengið. Óttist þær ekki. Þær geta ekki gert neitt illt og þær geta ekki heldur gert neitt gott.
6
Enginn er sem þú, Drottinn. Voldugur ert þú og mikill er máttur nafns þíns.
7
Hver skyldi ekki óttast þig, konungur þjóðanna? Þú ert þess maklegur því að meðal allra spekinga þjóðanna og í öllum ríkjum þeirra er enginn þinn líki.
8
Allir sem einn eru þeir heimskir og fávísir, áminningar þeirra eru merkingarlausar.
9
Þeir eru úr hömruðu silfri, fluttu frá Tarsis, og gulli frá Úfas, verk handverksmanna og gullsmiða, klæði þeirra úr bláum og rauðum purpura, allir eru þeir handaverk völunda.
10
En Drottinn er hinn sanni Guð, hann er lifandi Guð og eilífur konungur. Jörðin skelfur fyrir heift hans og þjóðirnar standast ekki reiði hans.
11
Um þá skuluð þér segja: Guðum, sem hvorki hafa gert himin né jörð, verður eytt af jörðinni og undan himninum.
12
Sá sem skapaði jörðina með krafti sínum, lagði grunn heimsins með speki sinni og þandi út himininn með þekkingu sinni.
13
Þegar hann lætur rödd sína þruma heyrist gnýr vatna í himninum, hann sendir ský upp frá endimörkum jarðar og lætur eldingar leiftra í regninu, hann hleypir vindinum út úr geymslum hans.
14
Sérhver maður verður skilningsvana glópur, hver gullsmiður mun skammast sín fyrir guðamyndirnar því að það sem hann steypir er blekking, þær hafa ekki lífsanda.
15
Þær eru aðeins vindgustur, hlægilegar og einskis nýtar. Þegar tími uppgjörsins kemur farast þær.
16
Hann sem er hlutskipti Jakobs er ekki líkur þeim því að hann hefur skapað allt og Ísrael er ættkvíslin sem er eign hans, Drottinn hersveitanna er nafn hans.
17
Taktu föggur þínar upp af jörðinni, þú sem býrð í umsetinni borg.
18
Því að Drottinn segir: Í þetta skipti varpa ég íbúum landsins í burtu. Ég mun þrengja svo mjög að þeim að þeir finni mig.
19
Vei mér, þjakaður er ég, sár mitt er ólæknandi. Ég hugsaði: „Þetta er sjúkdómur, ég skal bera hann.“
20
Tjald mitt hefur verið jafnað við jörðu, öll stögin eru slitin, börn mín hafa yfirgefið mig, þau eru hér ekki lengur. Enginn reisir tjald mitt aftur og þenur út tjalddúkinn.
21
Þar sem hirðarnir voru heimskingjar og leituðu ekki til Drottins lánaðist þeim ekkert og öll hjörð þeirra tvístraðist.
22
Hlustið. Fréttir voru að berast. Mikill gnýr berst frá landinu í norðri, borgirnar í Júda verða jafnaðar við jörð, þær verða sjakalabæli.
23
Ég veit, Drottinn, að enginn maður ræður för sinni, enginn stýrir skrefum sínum á göngunni.
24
Refsa mér, Drottinn, en þó í hófi, ekki í reiði, svo að þú upprætir mig ekki.
25
Úthelltu reiði þinni yfir þjóðirnar sem þekkja þig ekki og yfir þær kynkvíslir sem ekki ákalla nafn þitt því að þær hafa gleypt Jakob og eytt honum og lagt beitilönd hans í auðn.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52