bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 40
Jeremiah 40
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 41 →
1
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni eftir að Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, hafði leyft honum að fara frá Rama. Þegar Nebúsaradan sótti hann var hann hlekkjaður innan um fanga frá Jerúsalem og Júda sem átti að flytja til Babýlonar.
2
Þegar foringi lífvarðarins fann Jeremía sagði hann við hann: „Drottinn, Guð þinn, hótaði þessum stað þessari ógæfu.
3
Drottinn hefur látið það verða sem hann hótaði og framkvæmt það því að þér hafið syndgað gegn Drottni. Þar sem þér hlýdduð ekki fyrirmælum hans hlaut þessi ógæfa að koma yfir yður.
4
Nú leysi ég af þér hlekkina sem eru á höndum þínum. Ef þú vilt koma með mér til Babýlonar skaltu koma og ég mun annast þig vel. En viljir þú ekki koma með mér til Babýlonar láttu það þá ógert. Sjáðu, allt landið liggur opið fyrir þér, þú getur farið hvert sem þú vilt.
5
Ef þú vilt vera hér um kyrrt snúðu þá við til Gedalja Ahíkamssonar, Safanssonar, sem konungurinn í Babýlon hefur sett yfir borgirnar í Júda. Þú getur sest að hjá honum meðal fólksins eða farið hvert sem þú vilt.“ Foringi lífvarðarins fékk honum því næst nesti, gaf honum gjöf og kvaddi hann.
6
En Jeremía fór til Gedalja Ahíkamssonar í Mispa. Hann settist að hjá honum meðal fólksins sem eftir var í landinu.
7
Allir herforingjarnir, sem enn voru dreifðir um landið ásamt mönnum sínum, fréttu nú að konungurinn í Babýlon hefði skipað Gedalja Ahíkamsson landstjóra og að hann hefði falið honum umsjón með körlum, konum og börnum og þeim fátæklingum í landinu sem ekki höfðu verið fluttir til Babýlonar.
8
Þeir héldu nú til Gedalja í Mispa ásamt mönnum sínum. Þetta voru þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan og Jónatan Kareasynir, Seraja Tanhúmetsson, einnig synir Efaí frá Netófa og Jesanja, sonur manns nokkurs frá Maaka.
9
Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, vann þeim og mönnum þeirra eið og sagði: „Óttist ekki að þjóna Kaldeum. Verið um kyrrt í landinu og þjónið konunginum í Babýlon, þá mun yður vel farnast.
10
Ég bý sjálfur í Mispa til að vera fulltrúi yðar gagnvart Kaldeum þegar þeir koma til vor. En þér skuluð birgja yður upp af víni, ávöxtum og olíu, setja í geymsluker yðar og vera um kyrrt í borgunum sem þér takið til eignar.“
11
Júdamennirnir, sem voru í Móab, hjá Ammónítum eða í Edóm, og hinir, sem voru í ýmsum öðrum löndum, fréttu nú að konungurinn í Babýlon hefði skilið einhverja eftir í Júda og sett Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, landstjóra yfir það.
12
Júdamennirnir sneru þá allir heim frá hverjum þeim stað sem þeir höfðu verið hraktir til og héldu til Júda, til Gedalja í Mispa. Vín- og ávaxtauppskera varð mjög mikil.
13
Einhverju sinni komu Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir, sem enn voru dreifðir um landið, til Gedalja í Mispa
14
og spurðu hann: „Er þér kunnugt um það að Baalis, konungur Ammóníta, hefur sent Ísmael Netanjason til þess að ráða þér bana?“ En Gedalja Ahíkamsson trúði þeim ekki.
15
Þá lagði Jóhanan Kareason til við Gedalja á laun í Mispa: „Ég skal fara og drepa Ísmael Netanjason án þess að nokkur verði þess vís. Hvers vegna ætti hann að ráða þér bana svo að allir Júdamennirnir, sem hafa safnast saman um þig, tvístrist og það sem eftir er af Júdamönnum verði að engu?“
16
En Gedalja Ahíkamsson svaraði Jóhanan Kareasyni: „Láttu þetta ógert. Það sem þú segir um Ísmael er ekki satt.“
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 41 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52