bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 20
Jeremiah 20
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 21 →
1
Pashúr Immersson prestur, sem var yfirumsjónarmaður í húsi Drottins, heyrði Jeremía flytja þessa ræðu.
2
Hann lét því húðstrýkja Jeremía spámann og setja hann í gapastokkinn sem var í efra Benjamínshliðinu við hús Drottins.
3
Þegar Pashúr sleppti Jeremía úr gapastokknum morguninn eftir sagði Jeremía við hann: „Drottinn nefnir þig ekki lengur Pashúr heldur Skelfingu hvarvetna.
4
Því að svo segir Drottinn: Ég geri þig að skelfingu fyrir sjálfan þig og alla vini þína. Þeir munu falla fyrir sverði fjandmanna sinna og þú munt horfa á það með eigin augum. Ég mun selja allt Júda í hendur konungsins í Babýlon. Hann mun flytja íbúana í útlegð til Babýlonar og höggva þá með sverði.
5
Ég framsel allan auð þessarar borgar, allar eignir hennar, alla dýrgripi hennar og alla fjársjóði Júdakonunga í hendur fjandmanna þeirra. Þeir munu taka það herfangi og flytja til Babýlonar.
6
En þú, Pashúr, ferð í útlegð ásamt öllum sem búa í húsi þínu. Þú ferð til Babýlonar þar sem þú deyrð og verður grafinn, þú og allir vinir þínir sem þú hefur boðað lygi.“
7
Þú blekktir mig, Drottinn, og ég lét blekkjast, þú tókst mig tökum og barst hærri hlut. Ég verð sífellt að athlægi, allir hæða mig.
8
Í hvert skipti sem ég tala verð ég að hrópa og verð að kalla: „Ofbeldi og kúgun.“ Því að orð Drottins varð mér til skammar og skapraunar allan daginn.
9
Ef ég sagði: „Ég vil ekki hugsa um hann lengur og ekki tala í hans nafni,“ fannst mér eldur loga í hjarta mér, brenna í beinum mínum. Ég örmagnaðist við áreynsluna, hún varð mér um megn.
10
Ég hef heyrt baktal fjöldans: „Skelfing hvarvetna. Kærið hann, vér skulum kæra hann.“ Allir nánir vinir mínir bíða þess að ég hrasi: „Ef til vill lætur hann blekkjast svo að vér getum yfirbugað hann og hefnt vor á honum.“
11
En Drottinn stendur með mér eins og voldug hetja, þess vegna hrasa þeir sem ofsækja mig og sigra ekki. Þeir gera sjálfum sér hneisu því að þeir erfiða án árangurs, baka sér ævarandi smán sem aldrei gleymist.
12
Drottinn hersveitanna, þú sem prófar hinn réttláta, þú sem sérð nýrun og hjartað, láttu mig sjá hefnd þína á þeim. Þér fel ég málstað minn.
13
Lofsyngið Drottni, vegsamið Drottin því að hann frelsar líf hins snauða úr greipum illvirkjanna.
14
Bölvaður sé dagurinn þegar ég fæddist. Dagurinn, sem móðir mín ól mig, sé ekki blessaður.
15
Bölvaður sé maðurinn sem færði föður mínum gleðitíðindin: „Þér er fæddur sonur,“ og gladdi hann með því stórlega.
16
Fyrir þessum manni fari eins og borgunum sem Drottinn eyddi vægðarlaust: Hann heyri neyðaróp að morgni og heróp um hádegi
17
því að hann eyddi mér ekki í móðurkviði svo að móðir mín yrði mér gröf og móðurlíf hennar ævinlega þungað.
18
Hvers vegna þurfti ég að koma úr skauti móður minnar til þess að sjá mæðu og andstreymi og enda ævidaga mína í smán?
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 21 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52