bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 22
Jeremiah 22
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 23 →
1
Svo segir Drottinn: Farðu niður að höll Júdakonungs og segðu:
2
Hlýddu á orð Drottins, Júdakonungur, sem situr í hásæti Davíðs, þú sjálfur, hirðmenn þínir og þjóð, þér sem gangið um þessi hlið.
3
Svo segir Drottinn: Framfylgið rétti og réttlæti. Bjargið þeim sem rændur hefur verið úr greipum kúgarans. Hafið ekkert ranglega af aðkomumanni, munaðarleysingja eða ekkju. Kúgið engan. Úthellið ekki saklausu blóði á þessum stað.
4
Ef þér framfylgið þessu boði munu konungar, sem sitja í hásæti Davíðs, fara um þetta hlið. Þeir sjálfir, hirðmenn þeirra og þjóð munu koma akandi í vögnum og ríðandi á hestum.
5
En ef þér hlýðið ekki þessum orðum sver ég við sjálfan mig, segir Drottinn, að þessi höll verður lögð í rúst.
6
Svo segir Drottinn um höll konungsins í Júda: Fyrir mér ertu sem Gíleað, sem tindur Líbanons, en ég sver að ég mun gera þig að auðn, að óbyggðri borg.
7
Ég helga eyðendur gegn þér. Þeir munu höggva niður voldug sedrustré þín og varpa þeim á eld.
8
Margar þjóðir munu fara fram hjá þessari borg. Þegar menn spyrja hverjir aðra: „Hvers vegna hefur Drottinn farið svona með þessa miklu borg?“
9
verður svarað: „Af því að þeir sniðgengu sáttmálann við Drottin, Guð sinn, tilbáðu aðra guði og þjónuðu þeim.“
10
Grátið ekki hinn dauða og syrgið hann ekki. Nei, grátið þann sem varð að fara því að hann snýr ekki heim, hann mun ekki sjá föðurland sitt aftur.
11
Því að svo segir Drottinn um Sallúm Jósíason Júdakonung sem varð konungur eftir föður sinn en varð að yfirgefa þennan stað: Hann snýr ekki aftur hingað
12
því að hann verður fluttur í útlegð og þar mun hann deyja. Þetta land mun hann aldrei framar líta.
13
Vei þeim sem byggir hús sitt með ranglæti, sali sína með rangindum og lætur landa sinn þræla án launa og greiðir honum ekkert.
14
Hann segir: „Ég byggi mér stórt hús og rúmgóðar vistarverur.“ Hann setur í það glugga, þiljar það sedrusviði og málar það rautt.
15
Ríkir þú sem konungur af því að þú sýnir yfirburði í byggingum úr sedrusviði? Át faðir þinn ekki líka og drakk? En hann lagði stund á rétt og réttlæti og honum vegnaði því vel.
16
Hann rak réttar hinna umkomulausu og snauðu og allt gekk vel. Er það ekki að játa mig? spyr Drottinn.
17
En þú sérð hvorki né hugsar um annað en eigin gróða, að úthella saklausu blóði, kúga og skattpína.
18
Þess vegna segir Drottinn um Jójakím son Jósía Júdakonungs: Enginn mun syrgja hann og segja: „Æ, bróðir minn, vei, systir mín.“ Enginn mun syrgja hann og segja: „Æ, herra, vei, konungur.“
19
Hann verður grafinn eins og asni, hann verður dreginn burt og honum fleygt fyrir utan borgarhlið Jerúsalem.
20
Gakktu upp á Líbanonsfjöll og hrópaðu, hefðu upp raust þína í Basan, hrópaðu frá Abarímfjöllum því að allir elskhugar þínir eru sundurmolaðir.
21
Ég talaði til þín þegar þú varst enn áhyggjulaus en þú sagðir: „Ég vil ekki hlusta.“ Þannig var breytni þín frá æsku: Þú hlýddir ekki boðum mínum.
22
Stormurinn mun hirða alla hirða þína og elskhugar þínir fara í útlegð. Þá hlýtur þú smán og skömm fyrir alla illsku þína.
23
Þú sem býrð á Líbanon, gerir þér hreiður í sedrustrjám, hve mjög muntu stynja þegar þú færð hríðir og þjáist eins og jóðsjúk kona.
24
Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, jafnvel þótt Konja Jójakímsson Júdakonungur væri innsiglishringur á hægri hendi minni mundi ég slíta þig þaðan.
25
Ég sel þig í hendur þeim sem sækjast eftir lífi þínu, í hendur þeim sem þú óttast, í hendur Nebúkadresari konungi í Babýlon og í hendur Kaldeum.
26
Ég varpa þér og móður þinni, sem ól þig, til annars lands þar sem þið fæddust ekki og þar munuð þið deyja.
27
En þau munu aldrei snúa aftur heim til landsins sem þau þrá að hverfa aftur til.
28
Er þessi maður, Konja, ónothæft ílát sem á að brjóta, er hann verðlaust ker? Hvers vegna hefur honum og niðjum hans verið fleygt í burtu og þeir hraktir til lands sem þeir þekkja ekki?
29
Land, land, land, heyr orð Drottins.
30
Svo segir Drottinn: Skráið þennan mann barnlausan, mann sem ekkert hefur orðið úr því að engum niðja hans mun takast að setjast í hásæti Davíðs og ríkja framar yfir Júda.
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 23 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52