bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 49
Jeremiah 49
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 50 →
1
Um Ammóníta. Svo segir Drottinn: Á Ísrael enga syni, engan sem tekur arf eftir hann? Hvers vegna tók Milkóm ættbálk Gaðs í arf, hví settist þjóð Milkóms að í borgum hans?
2
Þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég læt heróp gjalla gegn Rabba, borg Ammóníta. Hún skal verða að auðri grjótrúst og dótturborgir hennar eyddar í eldi. Þá mun Ísrael taka í arf þá sem tóku arf hans, segir Drottinn.
3
Kveinaðu, Hesbon, því að eyðandinn heldur gegn þér. Grátið, dætur Rabba, gyrðist hærusekk, harmið, reikið um með skinnsprettur því að Milkóm fer í útlegð ásamt prestum sínum og höfðingjum.
4
Hvernig getur þú stært þig af dalnum þínum, sjálfumglaða dóttir sem treystir eigin auði og segir: „Hver skyldi ráðast á mig?“
5
Nú sendi ég skelfingu yfir þig úr öllum áttum, segir Drottinn, Guð hersveitanna. Þér verðið hraktir brott, hver í sína áttina, og enginn mun sameina þá sem flýja.
6
En eftir það mun ég snúa við högum Ammóníta, segir Drottinn.
7
Um Edóm. Svo segir Drottinn hersveitanna: Er engin speki framar í Teman? Eru góð ráð horfin hinum hyggnu? Er speki þeirra spillt?
8
Flýið, snúið við, skríðið í felur, þér sem búið í Dedan. Því að ég sendi böl yfir Esaú, sá tími er kominn að ég geri sakirnar upp við hann.
9
Ráðist vínyrkjar að þér skilja þeir ekkert eftir. Komi þjófar um nótt gera þeir þann usla sem þeim sýnist.
10
Já, ég mun sjálfur afhjúpa Esaú, ljóstra upp um felustaði hans svo að hann fái ekki dulist lengur. Afkvæmi hans og skyldmenni verða upprætt, nágrönnunum eytt svo að enginn getur sagt:
11
„Skildu munaðarleysingjana eftir.“ Ég skal halda í þeim lífinu. Ekkjurnar geta treyst mér.
12
Já, svo segir Drottinn: Takið eftir. Ef þeir sem ekki eru dæmdir til að drekka bikarinn verða að drekka hann verður þér þá hlíft við því? Þér verður ekki hlíft því að þú skalt drekka hann.
13
Já, ég hef svarið við sjálfan mig, segir Drottinn, að Bosra verði til skelfingar og smánar, henni skal verða eytt og bölvun lögð á hana og allar borgirnar, sem tilheyra henni, verða lagðar í rúst um alla framtíð.
14
Ég hef heyrt þau tíðindi frá Drottni að boðberi hafi verið sendur til þjóðanna: „Sameinist, ráðist gegn Edóm, haldið til orrustu.“
15
Ég geri þig smæsta þjóðanna, fyrirlitna meðal manna.
16
Skelfingin sem þú veldur og stærilæti þitt blekktu þig, þú sem býrð í klettaskorum, heldur þig á háum tindum. Þó að þú gerir þér hreiður jafnhátt og örn steypi ég þér niður, segir Drottinn.
17
Edóm mun valda skelfingu. Hver sem fer þar fram hjá verður skelfingu lostinn og blístrar háðslega yfir öllum áföllunum sem Edóm hefur orðið fyrir.
18
Eins og þegar Sódóma og Gómorra og nágrannaborgir þeirra höfðu verið eyddar, segir Drottinn, þar mun enginn maður búa og enginn hafa viðdvöl.
19
Líkt og ljón, sem rís upp úr kjarrinu á bökkum Jórdanar og stígur upp á sígrænt engið, mun ég flæma þá burt á augabragði og velja mér bestu sauðina að bráð. Því að hver er jafningi minn? Hver krefur mig um reikningsskil? Hvaða hirðir stenst frammi fyrir mér?
20
Heyrið því ákvörðun Drottins sem hann hefur tekið gegn Edóm, ráðin sem hann hefur ráðið gegn íbúunum í Teman: Sannarlega verða jafnvel hinir minnstu í hjörðinni dregnir í burtu, sannarlega mun þeirra eigin bithaga hrylla við örlögum þeirra.
21
Jörðin nötrar við brakið af hruni þeirra, kveinið þaðan heyrist alla leið að Sefhafinu.
22
Fjandmaðurinn hefur sig til flugs, kemur svífandi eins og örn og þenur vængina út yfir Bosra. Þann dag verður hjarta kappanna í Edóm eins og hjarta konu í barnsnauð.
23
Um Damaskus: Hamat og Arpad eru felmtri slegnar því að þeim hafa borist ótíðindi. Þær eru iðandi af áhyggjum eins og hafið sem aldrei getur verið kyrrt.
24
Íbúana í Damaskus brestur kjark, þeir leggja á flótta, gripnir skelfingu, engjast eins og jóðsjúk kona.
25
Er hin glæsta borg ekki gersamlega yfirgefin, borg gleði og glaums?
26
Því munu æskumenn hennar falla á torgunum og allir hermenn farast á þeim degi, segir Drottinn hersveitanna.
27
Ég mun leggja eld að borgarmúrum Damaskus svo að hann gleypi hallir Benhadads.
28
Um Kedar og konungsríki Hasórs sem Nebúkadresar Babýloníukonungur sigraði: Svo segir Drottinn: Komið, ráðist á Kedar. Gereyðið austurbyggjum.
29
Þeir munu ræna tjöldum þeirra og sauðahjörðum, tjalddúkum þeirra og öllum búnaði, taka úlfalda þeirra með sér og hrópa yfir þeim: „Skelfing úr öllum áttum.“
30
Leggið á flótta, flýið sem hraðast. Skríðið í felur, þér sem búið í Hasór, segir Drottinn, því að Nebúkadresar, konungur í Babýlon, hefur lagt á ráð gegn yður og tekið ákvörðun.
31
Komið, ráðist á þessa ugglausu þjóð sem býr við öryggi, segir Drottinn, og hefur hvorki hurðir né slagbranda og býr ein sér.
32
Úlfaldar þeirra verða ránsfengur og fjölmargar nautahjarðir herfang. Ég mun dreifa þeim út í veður og vind, þeim sem hafa skorið hárið frá gagnaugunum mun ég senda böl úr öllum áttum, segir Drottinn.
33
Hasór verður bústaður sjakala, þar mun enginn maður búa og enginn hafa þar viðdvöl.
34
Orð Drottins gegn Elam, sem kom til Jeremía spámanns við upphaf stjórnartíma Sedekía Júdakonungs:
35
Svo segir Drottinn hersveitanna: Nú brýt ég boga Elamíta, öflugasta vopn þeirra.
36
Ég hleypi á Elam fjórum vindum, frá fjórum hornum himins. Ég tvístraði þeim fyrir öllum þessum vindum og engin sú þjóð verður til að flóttamenn frá Elam komi þangað ekki.
37
Ég skýt Elamítum skelk í bringu frammi fyrir fjandmönnum þeirra, frammi fyrir þeim sem sækjast eftir lífi þeirra. Ég sendi böl gegn þeim, logandi reiði mína, segir Drottinn. Ég sendi sverðið á eftir þeim þar til ég hef eytt þeim.
38
Ég reisi hásæti mitt í Elam og eyði þaðan konungi og höfðingjum, segir Drottinn.
39
En eftir það mun ég snúa við högum Elams, segir Drottinn.
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 50 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52