bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 30
Jeremiah 30
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 31 →
1
Orðið sem kom frá Drottni til Jeremía:
2
Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Skráðu í bók öll þau orð sem ég hef flutt þér.
3
Því að þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég sný við hag þjóðar minnar, Ísraels og Júda, segir Drottinn. Ég mun leiða þá aftur til landsins sem ég fékk feðrum þeirra og þeir tóku til eignar.
4
Þetta eru orðin sem Drottinn flutti Ísrael og Júda.
5
Svo segir Drottinn: Vér heyrum angistaróp til marks um ótta en ekki frið.
6
Spyrjið og gætið að: Getur karl alið barn? Hví eru allir karlmenn, sem ég sé, með hendur á lendum eins og kona með jóðsótt? Hví er hvert andlit nábleikt?
7
Já, mikill er þessi dagur, engum öðrum líkur. Þetta er þrengingatíð fyrir Jakob en honum verður bjargað.
8
Þann dag, segir Drottinn hersveitanna, mun ég brjóta okið af hálsi hans og slíta hlekki hans. Þeir munu ekki lengur þræla fyrir framandi menn
9
heldur þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, sem ég mun hefja upp þeirra vegna.
10
Óttast ekki, þjónn minn, Jakob, segir Drottinn, og lát ekki hugfallast, Ísrael. Ég mun sjálfur bjarga þér úr fjarlægu landi, niðjum þínum úr landinu þar sem þeir eru útlagar. Jakob mun snúa heim og næðis njóta. Hann mun búa þar óhultur og enginn ógna honum.
11
Já, ég er með þér, segir Drottinn, til að bjarga þér. Ég mun eyða öllum þeim þjóðum sem ég dreifði þér á meðal. Þér einum mun ég aldrei eyða en ég mun refsa þér við hæfi og ekki láta þér með öllu óhegnt.
12
Svo segir Drottinn: Brot þitt verður ekki grætt, sár þitt ekki læknað.
13
Enginn leitar réttar þíns. Meinið hefst illa við, þú færð enga bót.
14
Allir vinir þínir hafa gleymt þér, þeir vitja þín ekki því að ég laust þig sem fjandmann, hirti þig harðlega því að sekt þín var mikil, syndir þínar margar.
15
Hví hljóðar þú vegna áverka þíns, vegna ólæknandi kvalar þinnar? Vegna mikillar sektar þinnar og fjölmargra synda hef ég gert þér þetta.
16
En allir sem gleyptu þig verða gleyptir og allir sem kúguðu þig gerðir útlægir. Þeir sem rændu þig verða rændir, þá sem tóku af þér herfang geri ég að herfangi.
17
Ég mun græða þig, lækna sár þín, segir Drottinn, því að þú varst nefnd „hin brottrekna“, „Síon sem enginn spyr um“.
18
Svo segir Drottinn: Ég sný við högum Jakobs tjalda og sýni bústöðum hans miskunn. Borgin skal endurreist á rústunum og höllin standa þar sem hún hefur alltaf staðið.
19
Þaðan skal hljóma lofsöngur og fögnuður. Ég fjölga þeim, þeir verða ekki fáir, ég veiti þeim virðingu, þeir verða ekki lítilsvirtir.
20
Synir Jakobs verða sem forðum og söfnuður hans verður stöðugur fyrir augliti mínu en alla kúgara hans dreg ég til ábyrgðar.
21
Afkomandi hans verður leiðtogi hans, af ætt hans kemur drottnari hans. Ég mun leyfa honum að ganga fram fyrir mig svo að hann geti nálgast mig. Hver annar mundi hætta lífi sínu til að nálgast mig? segir Drottinn.
22
Þér verðið mín þjóð og ég verð yðar Guð.
23
Já, stormur Drottins, reiði hans, brýst fram, hvirfilvindur sem steypist yfir höfuð hinna óguðlegu.
24
Bálandi reiði Drottins linnir ekki fyrr en hann hefur að fullu framkvæmt fyrirætlanir hjarta síns. Síðar munuð þér skilja það.
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 31 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52