bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 18
Jeremiah 18
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 17
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 19 →
1
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni:
2
Farðu nú niður í hús leirkerasmiðsins. Þar mun ég láta þig heyra orð mín.
3
Ég gekk því niður til húss leirkerasmiðsins einmitt þegar hann var að vinna við hjólið.
4
Mistækist kerið, sem hann var að móta úr leirnum, bjó hann til nýtt ker eftir því sem honum sýndist best.
5
Þá kom orð Drottins til mín:
6
Get ég ekki farið með yður, Ísraelsmenn, eins og þessi leirkerasmiður gerir? segir Drottinn. Þér eruð í hendi minni, Ísraelsmenn, eins og leirinn í hendi leirkerasmiðsins.
7
Stundum hóta ég einhverri þjóð eða konungsríki að uppræta það, brjóta það niður eða eyða því.
8
En hverfi þessi þjóð, sem ég hef hótað, frá illri breytni sinni iðrast ég þeirrar ógæfu sem ég hafði ákveðið að senda yfir hana.
9
Stundum heiti ég einhverri þjóð eða konungsríki að endurreisa það eða gróðursetja
10
en geri hún það sem illt er í augum mínum án þess að hlýða boðum mínum iðrast ég hins góða sem ég hafði heitið að gera henni.
11
Segðu nú við Júdamenn og Jerúsalembúa: Svo segir Drottinn: Ég bý yður ógæfu og brugga ráð gegn yður. Hver og einn hverfi nú frá sinni illu breytni og snúi til betri vegar og góðrar breytni.
12
En þeir munu svara: Það er til einskis. Vér fylgjum vorum eigin hugmyndum og sérhver mun breyta eftir þverúð síns vonda hjarta.
13
Þess vegna segir Drottinn: Spyrjið á meðal þjóðanna hver hafi heyrt annað eins. Mærin Ísrael hefur unnið ódæði.
14
Hverfur grjótið af sléttunni, snjórinn af Líbanonstindum? Þorna sírennandi lækir, niðandi lindir?
15
Þjóð mín hefur gleymt mér, hún fórnar reykelsi fánýtum goðum sem hafa leitt hana í hrösun á gömlu götunum inn á óruddar slóðir.
16
Þeir gera land sitt að skelfilegum stað sem sífellt er hæðst að, hver sem fer þar um fyllist hryllingi og hristir höfuðið.
17
Eins og austanvindur mun ég tvístra þeim fyrir fjandmönnum þeirra, ég mun snúa í þá bakinu en ekki andlitinu á glötunardegi þeirra.
18
Þeir sögðu: „Komið, vér skulum brugga ráð gegn Jeremía því að ekki brestur prestinn kenningu, spekinginn ráð né spámanninn orð. Komið, vér skulum ráðast á hann með hans eigin orðum og ekki hlusta á neitt sem hann segir.“
19
Drottinn, fylgstu með mér og hlustaðu á tal andstæðinga minna.
20
Má gjalda gott með illu? Því að þeir hafa grafið mér gröf. Minnstu þess að ég hef staðið frammi fyrir þér til að tala máli þeirra og snúa heift þinni frá þeim.
21
Ofurseldu því syni þeirra hungrinu og gefðu þá sverðinu á vald, gerðu konur þeirra barnlausar og ekkjur, eiginmennirnir farist úr drepsótt og æskumenn þeirra falli fyrir sverði í orrustu.
22
Láttu neyðaróp heyrast úr húsum þeirra þegar þú sendir ránsflokka gegn þeim að óvörum því að þeir hafa grafið gryfju til að veiða mig í og lagt snörur fyrir fætur mína.
23
En þú, Drottinn, veist um öll þeirra fjörráð gegn mér. Fyrirgefðu ekki glæp þeirra, afmáðu ekki synd þeirra. Láttu þá hrasa frammi fyrir augliti þínu, hafðu afskipti af þeim á meðan þú ert reiður.
← Chapter 17
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 19 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52