bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 41
Jeremiah 41
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 40
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 42 →
1
Í sjöunda mánuðinum bar það til að Ísmael Netanjason, Elísamasonar, sem var skyldur konungsættinni, kom til Gedalja Ahíkamssonar, Safanssonar, í Mispa og tíu menn með honum. Þegar þeir snæddu með honum í Mispa
2
reis Ísmael Netanjason á fætur, ásamt þeim tíu mönnum sem komið höfðu með honum, og hjó Gedalja Ahíkamsson, Safanssonar, banahögg. Þannig drap hann þann mann sem Babýloníukonungur hafði skipað landstjóra.
3
Hann drap einnig alla þá Júdamenn sem voru hjá Gedalja í Mispa. Ísmael drap enn fremur hermennina frá Kaldeu sem þar voru.
4
Daginn eftir að Gedalja var myrtur, áður en nokkuð hafði frést um það,
5
komu áttatíu menn frá Síkem, Síló og Samaríu. Höfðu þeir rakað af sér skeggið, rifið föt sín og rist á sig skinnsprettur. Þeir höfðu með sér korn til fórnar og reykelsi sem þeir ætluðu að fara með til húss Drottins.
6
Ísmael Netanjason gekk út úr Mispa til móts við þá. Hann grét á göngunni og þegar hann mætti þeim sagði hann: „Komið til Gedalja Ahíkamssonar.“
7
Þegar þeir voru komnir inn í miðja borgina hjó Ísmael Netanjason og þeir sem með honum voru mennina og fleygðu þeim í gryfju.
8
En meðal þeirra voru tíu menn sem sögðu við Ísmael: „Dreptu oss ekki. Vér eigum matarbirgðir sem eru faldar úti á akri, hveiti, bygg, olíu og hunang.“ Þá hætti hann við að drepa þá mitt á meðal skyldmenna þeirra.
9
En gryfjan sem Ísmael kastaði í öllum líkum þeirra manna er hann drap var stóra gryfjan sem Asa konungur hafði látið gera til varnar gegn Basa Ísraelskonungi. Hana fyllti Ísmael Netanjason vegnum mönnum.
10
Því næst fór Ísmael Netanjason burt með allt fólkið sem eftir var í Mispa. Hann fór bæði með dætur konungsins og alla aðra sem eftir voru í Mispa og Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, hafði sett Gedalja Ahíkamsson landstjóra yfir. Ísmael Netanjason tók fólkið með sér og hélt svo af stað til að komast yfir til Ammóníta.
11
Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir, sem með honum voru, fréttu nú um öll illvirkin sem Ísmael Netanjason hafði framið.
12
Þeir héldu því af stað ásamt öllum mönnum sínum til að ráðast á Ísmael Netanjason. Þeir fundu hann við stóra vatnið í Gíbeon.
13
Þegar allt fólkið, sem var með Ísmael, kom auga á Jóhanan Kareason og alla herforingjana, sem voru með honum, gladdist það.
14
Allt fólkið, sem Ísmael hafði flutt með sér frá Mispa, yfirgaf hann nú og fór yfir til Jóhanans Kareasonar
15
en Ísmael Netanjason komst undan Jóhanan ásamt átta mönnum og flýði yfir til Ammóníta.
16
Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir, sem voru með honum, fóru því næst frá Gíbeon með alla þá sem eftir voru af fólkinu og Ísmael Netanjason hafði tekið með sér frá Mispa eftir að hann hafði drepið Gedalja Ahíkamsson. Þeir tóku með sér hermenn, konur, börn og hirðmenn,
17
héldu af stað og námu svo staðar við gistihús Kimhams sem er við Betlehem. Þeir hugðust flýja til Egyptalands
18
undan Kaldeum því að þeir voru hræddir við þá þar sem Ísmael Netanjason hafði drepið Gedalja Ahíkamsson sem konungurinn í Babýlon hafði skipað landstjóra.
← Chapter 40
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 42 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52