bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 35
Jeremiah 35
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 34
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 36 →
1
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Jójakím Jósíason var konungur í Júda:
2
Farðu í hús Rekabítanna, talaðu við þá og farðu með þá í hús Drottins, í eitthvert herbergið, og gefðu þeim vín að drekka.
3
Þá sótti ég Jaasanja Jeremíason, Habasinjasonar, bræður hans og alla syni og allan flokk Rekabíta.
4
Ég fór með þá í hús Drottins, í herbergi sona Hanans, sonar guðsmannsins Jigdalja, en það er við hliðina á herbergi höfðingjanna sem er yfir herbergi Maaseja Sallúmssonar þröskuldsvarðar.
5
Því næst bar ég skálar fullar af víni og bikara fyrir mennina úr flokki Rekabíta og sagði við þá: „Drekkið nú dálítið vín.“
6
Þeir svöruðu: „Vér drekkum aldrei vín því að Jónadab Rekabsson, ættfaðir vor, skipaði svo fyrir: Þér megið aldrei drekka vín, hvorki þér sjálfir né afkomendur yðar.
7
Þér megið hvorki reisa hús né sá sæði og hvorki gróðursetja né eiga víngarða. Þér skuluð búa í tjöldum alla ævi svo að þér lifið lengi í landinu sem þér dveljið í sem aðkomumenn.
8
Vér höfum hlýtt öllum fyrirmælum Jónadabs Rekabssonar, ættföður vors, sem hann setti oss. Því drekkum vér ekki vín svo lengi sem vér lifum, hvorki vér sjálfir, konur vorar, synir né dætur.
9
Vér reisum ekki hús til að búa í, vér eigum hvorki víngarð, akur né sáðkorn,
10
heldur búum vér í tjöldum. Vér fylgjum í öllu því sem Jónadab, ættfaðir vor, gaf oss fyrirmæli um.
11
En þegar Nebúkadresar konungur í Babýlon gerði innrás í landið sögðum vér: Komið, vér skulum fara til Jerúsalem undan her Kaldea og Aramea. Þess vegna búum vér í Jerúsalem.“
12
Þá kom orð Drottins til Jeremía:
13
Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Farðu og segðu við íbúana í Jerúsalem og Júda: Viljið þér ekki hlýða á orð mín og láta yður segjast? segir Drottinn.
14
Boð Jónadabs Rekabssonar hafa verið haldin í heiðri. Hann skyldaði niðja sína til að drekka ekki vín og þeir hafa ekki drukkið það hingað til. Þeir hafa hlýtt boði ættföður síns en ég hef talað til yðar seint og snemma en þér hafið ekki hlýtt mér.
15
Ég hef hvað eftir annað sent yður þjóna mína, spámennina, til að boða: Snúið yður, hver af sínum vonda vegi, og bætið breytni yðar. Eltið ekki aðra guði til að þjóna þeim. Þá munuð þér búa áfram í landinu sem ég gaf feðrum yðar. En þér lögðuð ekki við hlustir og hlýdduð mér ekki.
16
Já, niðjar Jónadabs Rekabssonar hafa haldið í heiðri fyrirmæli ættföður síns, sem hann gaf þeim, en þetta fólk hlustar ekki á mig.
17
Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna, Guð Ísraels: Ég sendi yfir Júda og alla Jerúsalembúa allt það böl sem ég hef hótað. Þeir hlustuðu ekki þegar ég talaði til þeirra og svöruðu ekki þótt ég hrópaði til þeirra.
18
En Jeremía sagði við flokk Rekabíta: Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Þér hafið hlýtt fyrirmælum Jónadabs, ættföður yðar, virt öll boð hans og framfylgt öllu því sem hann setti yður.
19
Þess vegna segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Aldrei skal skorta afkomanda af ætt Jónadabs Rekabssonar til að þjóna fyrir augliti mínu.
← Chapter 34
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 36 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52