bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 19
Jeremiah 19
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 20 →
1
Svo sagði Drottinn: Farðu og kauptu leirkrús og hafðu með þér nokkra af öldungum þjóðarinnar og nokkra helstu prestana.
2
Gakktu síðan út í Hinnomssonardal sem er við Leirbrotahliðið. Þar skaltu kunngjöra þau orð sem ég flyt þér
3
og segja: Heyrið orð Drottins, Júdakonungar og Jerúsalembúar. Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Nú sendi ég þvílíkt böl yfir þennan stað að gjalla mun í eyrum allra þeirra sem um það heyra.
4
Þetta geri ég af því að þér hafið svikið mig og gert mér þennan stað framandi með því að færa þar reykelsisfórnir öðrum guðum sem hvorki þér sjálfir, feður yðar né Júdakonungar höfðu áður þekkt. Þeir hafa fyllt þennan stað af saklausu blóði.
5
Þeir byggðu fórnarhæðir til að færa Baal þar syni sína að brennifórn. Það hef ég aldrei boðið og aldrei nefnt, það hefur aldrei komið mér í hug.
6
Því skulu þeir dagar koma, segir Drottinn, að þessi staður verður ekki lengur nefndur Tófet eða Hinnomssonardalur heldur Drápsdalur.
7
Ég mun spilla ráðagerð Júdamanna og Jerúsalembúa á þessum stað. Ég mun fella þá með sverði frammi fyrir fjandmönnum sínum, með hendi þeirra sem sitja um líf þeirra. Ég mun gefa fuglum himinsins og dýrum merkurinnar lík þeirra að æti.
8
Ég mun gera þessa borg að stað sem menn hryllir við og þeir hæðast að. Hvern sem á leið um hana mun hrylla við og hann hæðast að henni vegna allra þeirra áfalla sem hún hefur orðið fyrir.
9
Ég mun láta þá eta hold sona sinna og dætra. Þeir munu eta hold hver annars í þeirri neyð og þrengingu sem fjandmenn þeirra og þeir sem sitja um líf þeirra munu valda þeim.
10
Síðan skaltu brjóta krúsina fyrir augum þeirra sem fara með þér
11
og segja við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna: Ég brýt þessa þjóð og þessa borg eins og þegar leirker er brotið svo að það verði ekki gert heilt aftur. Í Tófet verða svo margir jarðaðir að ekkert rúm verður þar til að grafa fleiri.
12
Þannig mun ég fara með þennan stað og íbúa hans, segir Drottinn, svo að þessi borg verði eins og Tófet.
13
Húsin í Jerúsalem og hús Júdakonunga skulu verða óhrein eins og þessi staður, Tófet, öll húsin þar sem öllum himinsins her hafa verið færðar reykelsisfórnir á þökunum og öðrum guðum dreypifórnir.
14
Þegar Jeremía kom frá Tófet þangað sem Drottinn hafði sent hann til að flytja boðskap sinn tók hann sér stöðu í forgarði húss Drottins og ávarpaði allan söfnuðinn:
15
Svo segir Drottinn hersveitanna, Ísraels Guð: Ég sendi alla þá ógæfu, sem ég hef hótað, yfir þessa borg og borgirnar, sem henni heyra til, vegna þess að íbúarnir hafa þverskallast við og ekki hlýtt á orð mín.
← Chapter 18
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 20 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52