bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 12
Jeremiah 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 13 →
1
Þú ert réttlátur, Drottinn, þegar ég deili við þig, samt vil ég ræða við þig um dóma þína. Hvers vegna njóta ranglátir velgengni, af hverju lifa svikarar óhultir?
2
Þú gróðursettir þá og þeir skjóta rótum, dafna og bera ávöxt. Þú ert nálægur vörum þeirra en fjarlægur huga þeirra.
3
Drottinn, þú þekkir mig og sérð mig, þú hefur rannsakað hjarta mitt. Flokkaðu þá eins og fé til slátrunar, helgaðu þá aftökudeginum.
4
Hve lengi á landið að syrgja og allar jurtir merkurinnar að skrælna? Búfé og fuglar farast vegna illsku landsbúa því að þeir hugsa: „Hann sér ekki afdrif vor.“
5
Ef þú mæðist af kapphlaupi við fótgangandi menn, hvernig ætlarðu þá að keppa við hesta? Ef þú ert aðeins öruggur um þig í friðuðu landi, hvernig ætlarðu þá að komast af í kjarrinu við Jórdan?
6
Jafnvel bræður þínir og fjölskylda bregðast þér, þeir kalla á eftir þér fullum hálsi. Treystu þeim ekki þótt þeir tali hlýlega við þig.
7
Ég hef yfirgefið hús mitt, ég hef hafnað erfðahlut mínum, ég hef ofurselt ástvin minn fjandmönnum sínum.
8
Arfleifð mín er orðin eins og ljón í skógi, hún öskrar gegn mér, þess vegna hafna ég henni.
9
Er arfleifð mín orðin að skrautlegum ránfugli sem umkringdur er öðrum ránfuglum? Komið, safnist hingað, öll villt dýr, komið og étið.
10
Fjölmargir hjarðmenn hafa eytt víngarð minn, fótum troðið akur minn, þeir hafa gert fagra ekru mína að sviðinni eyðimörk.
11
Þeir hafa gert hana að dapurlegri eyðimörk, hún liggur auð frammi fyrir mér, allt landið er eytt en enginn skiptir sér af því.
12
Eyðandi ræningjar hafa ruðst yfir hæðirnar í eyðimörkinni, sverð Drottins gleypir allt endanna á milli, enginn er óhultur.
13
Þeir sáðu hveiti en skáru upp þyrna, erfiði þeirra var árangurslaust, uppskeran olli þeim vonbrigðum vegna brennandi reiði Drottins.
14
Svo segir Drottinn: Ég ríf upp alla vonda nágranna mína sem hafa snert erfðahlutinn sem ég fékk lýð mínum, Ísrael. Ég ríf einnig upp ætt Júda sem er mitt á meðal þeirra.
15
En þegar ég hef rifið þá upp mun ég aftur miskunna mig yfir þá og flytja þá heim, sérhvern til síns erfðahlutar og til síns héraðs.
16
Ef þeir þá læra rækilega siði þjóðar minnar og sverja við nafn mitt: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir,“ eins og þeir kenndu þjóð minni áður að sverja við Baal verða þeir reistir við meðal þjóðar minnar.
17
En hlýði þeir ekki slít ég þessa þjóð endanlega upp og eyði henni, segir Drottinn.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52