bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 51
Jeremiah 51
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 50
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 52 →
1
Svo segir Drottinn: Nú vek ég eyðandi storm gegn Babýlon og Kaldeum,
2
ég sendi vinsara til Babýlonar til að varpa þeim upp svo að hismið fjúki burt. Þeir eiga að feykja burt ríkinu og eyða landi Babýlonar þegar þeir setjast um hana úr öllum áttum á óheilladeginum.
3
Sá sem bendir boga verður ekki þróttlaus, hinn brynjaði mun ekki þreytast. Þyrmið ekki æskumönnum hennar, helgið allan her hennar banni.
4
Þeir munu liggja vegnir í landi Kaldea, reknir í gegn á strætum borgarinnar.
5
Ísrael og Júda eru eigi ekkjur, yfirgefnar af Drottni hersveitanna, þó að land þeirra sé fullt af synd gegn Hinum heilaga í Ísrael.
6
Flýið frá Babýlon. Bjargið lífi yðar, hver um sig, svo að yður verði ekki tortímt þegar henni verður refsað því að tími er kominn fyrir hefnd Drottins. Nú geldur hann Babýlon eftir verkum hennar.
7
Babýlon var gullbikar í hendi Drottins, sem gerði alla veröldina drukkna. Þjóðirnar drukku vínið úr honum og létu sem óðar væru.
8
Skyndilega féll Babýlon og brotnaði í smátt. Kveinið yfir henni. Sækið smyrsl við sári hennar, ef til vill er hægt að græða það.
9
Vér vildum lækna Babýlon en hún var ólæknandi. Yfirgefið hana. Vér höldum hver til síns lands. Refsidómurinn yfir henni nær til himins, hann gnæfir upp í skýin.
10
Drottinn hefur birt réttlátan málstað vorn. Komið, vér skulum segja frá því á Síon sem Drottinn, Guð vor, hefur afrekað.
11
Yddið örvarnar, grípið skildina. Drottinn hefur blásið kjarki í brjóst konunganna í Medíu því að hann ætlar að leggja Babýlon í rúst. Það er hefnd Drottins, hefnd fyrir musteri hans.
12
Hefjið gunnfána gegn múrum Babýlonar. Styrkið varðsveitina. Komið fyrir framvörðum. Leggist í launsátur. Drottinn hefur ákveðið þetta og stendur við hótun sína gegn Babýloníumönnum.
13
Þú sem býrð við vötnin miklu, auðug að fjársjóðum, endadægur þitt er upp runnið, síðasta alin lífsþráðar þíns af skorin.
14
Drottinn hersveitanna hefur svarið við sjálfan sig: Þó að ég fyllti þig mannmergð eins og engisprettusveim verður heróp hrópað gegn þér.
15
Hann skapaði jörðina með krafti sínum, grundvallaði heiminn með speki sinni og þandi út himininn með þekkingu sinni.
16
Þegar hann lætur rödd sína þruma heyrist vatnaniður í himninum, hann sendir ský upp frá endimörkum jarðar og lætur eldingar leiftra í regninu, hann hleypir vindinum út úr geymslum hans.
17
Sérhver maður verður undrandi og skilningsvana, hver gullsmiður skammast sín fyrir guðamyndir sínar því að myndirnar, sem hann steypir, eru blekking, í þeim er enginn lífsandi.
18
Þær eru aðeins vindgustur, hlægilegar og einskis nýtar. Þegar tími reikningsskila rennur upp farast þær.
19
Hann sem er hlutskipti Jakobs líkist þeim ekki því að hann hefur skapað allt og Ísrael er hans eigin ættkvísl. Drottinn hersveitanna er nafn hans.
20
Þú ert kylfa mín, þú ert vopn mitt. Með þér mola ég þjóðir, legg konungsríki í rúst.
21
Með þér mola ég hest og riddara, með þér mola ég vopn og vagnstjóra.
22
Með þér mola ég karl og konu, með þér mola ég öldung og ungling, með þér mola ég pilt og stúlku.
23
Með þér mola ég hirði og hjörð hans, með þér mola ég bónda og sameyki hans, með þér mola ég landstjóra og höfðingja.
24
Nú endurgeld ég Babýlon og öllum íbúum Kaldeu frammi fyrir yður öll þau níðingsverk sem þeir unnu gegn Síon, segir Drottinn.
25
Nú held ég gegn þér, fjall tortímingarinnar sem lagðir allan heiminn í eyði, segir Drottinn. Ég rétti út hönd mína gegn þér, ég geri þig að grjóthrúgu og kasta þér í eldsofninn.
26
Til þín verður hvorki sóttur hornsteinn né undirstöðusteinn því að þú verður auðn um alla framtíð, segir Drottinn.
27
Reisið gunnfána á jörðinni, þeytið hafurshornið meðal þjóðanna. Vígið þjóðir til stríðs gegn Babýlon, kallið saman konungsríki gegn henni, Ararat, Minní og Askenas. Skipið foringja gegn henni. Sendið út stríðshesta líka loðnum engisprettum.
28
Vígið þjóðir til stríðs gegn Babýlon, konunga Medíu, landstjóra hennar og höfðingja, allt ríki hennar.
29
Jörðin nötrar og skelfur því að fyrirætlanir Drottins gegn Babýlon stóðust með því að hann gerði land Babýlonar að óbyggðri eyðimörk.
30
Kappar Babýlonar hafa hætt að berjast, þeir híma í varnarvirkjunum, kraftur þeirra er þorrinn, þeir eru orðnir sem konur. Hús Babýlonar eru brunnin, slagbrandar hliðanna brotnir.
31
Hlaupari tekur við af hlaupara, boðberi af boðbera, til að tilkynna konunginum í Babýlon að borg hans sé fallin endanna á milli,
32
vöðin yfir fljótið tekin, bátarnir brenndir, hermennirnir skelfdir.
33
Því að svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Dóttirin Babýlon líkist þreskivelli á þreskitíð, innan skamms kemur uppskerutími hennar.
34
Nebúkadresar, konungur í Babýlon, hefur gleypt mig, etið mig upp. Hann hefur stjakað mér til hliðar eins og tæmdu íláti. Hann hefur rifið mig í sig eins og dreki, hann fyllti kviðinn með bestu bitunum og kastaði síðan upp.
35
„Sú kúgun og það ofbeldi, sem ég hef þolað, komi yfir Babýlon,“ skulu íbúarnir í Síon segja; „komi blóð mitt yfir íbúa Kaldeu,“ skal Jerúsalem segja.
36
Þess vegna segir Drottinn: Ég sæki sjálfur mál þitt og hefni þín. Ég þurrka upp Babelfljót, læt lindir þess þorna.
37
Babýlon verður að grjóthrúgu, hún verður bústaður sjakala, staður sem vekur andstyggð og fyrirlitningu, þar sem enginn á heima.
38
Þeir reka upp öskur eins og ljón, allir í einu, urra eins og ljónshvolpar.
39
Þegar þeir verða gráðugir geri ég þeim veislu, geri þá drukkna svo að þeir líði út af, því næst sofna þeir ævarandi svefni og vakna ekki aftur, segir Drottinn.
40
Ég leiði þá til slátrunar eins og lömb, eins og hrúta og geithafra.
41
Æ, Sesak var tekin, unnin, prýði allrar jarðar. Æ, Babýlon varð til skammar meðal framandi þjóða.
42
Hafið gekk yfir Babýlon, drynjandi bylgjum þess skolaði yfir hana.
43
Borgir hennar urðu auðn, skrælnað land og eyðimörk, land þar sem enginn býr og enginn maður fer um.
44
Ég vitja Bels í Babýlon og ríf bráðina úr gini hans, þjóðirnar munu ekki streyma til hans framar. Borgarmúr Babýlonar mun einnig hrynja.
45
Þjóð mín, farðu burt úr þessari borg. Bjargið lífi yðar, hver um sig, undan bálandi heift Drottins.
46
Missið ekki kjarkinn og hræðist ekki orðróminn sem berst um landið. Þetta ár gengur þessi orðrómur, næsta ár annar. Ofbeldi ríkir í landinu og valdsmennirnir standa hver gegn öðrum.
47
Þeir dagar koma að ég mun vitja hjáguða Babýlonar. Allt landið verður niðurlægt. Allir hinir vegnu munu liggja inni í borginni.
48
Himinn og jörð og allt sem í þeim er mun fagna yfir Babýlon þegar eyðendurnir koma gegn henni úr norðri, segir Drottinn.
49
Fall Babýlonar er ákveðið vegna þeirra sem fallnir eru af Ísrael eins og vegnir menn um allan heim féllu fyrir Babýlon.
50
Þér sem hafið komist undan sverðinu, haldið af stað, nemið ekki staðar. Minnist Drottins úr fjarlægð, hafið Jerúsalem í huga.
51
Vér höfum verið niðurlægðir, höfum þurft að heyra háðsyrði. Andlit vor roðnuðu af smán því að framandi menn ruddust inn í hinar helgu vistarverur í húsi Drottins.
52
Sjá, þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég mun vitja hjáguða Babýlonar og alls staðar í landinu munu særðir menn liggja og stynja.
53
Þó að Babýlon gnæfi við himin og styrki ókleif vígi sín munu eyðendur frá mér ryðjast inn í hana, segir Drottinn.
54
Heyrið. Neyðaróp berst frá Babýlon, ógurlegt brak frá landi Kaldea.
55
Drottinn leggur Babýlon í eyði, lætur glymjandann frá henni þagna þó að öldur hans drynji eins og mikið vatn og niðurinn belji.
56
Já, hann kemur gegn henni, eyðandinn heldur gegn Babýlon, kappar hennar verða gripnir, bogar þeirra brotnir, því að Drottinn er Guð sem launar, hann endurgeldur að fullu.
57
Ég geri leiðtoga og spekinga Babýlonar drukkna ásamt landstjórum hennar, herforingjum og stríðshetjum. Þeir skulu falla í ævarandi svefn og þeir munu ekki vakna framar, segir konungurinn. Drottinn hersveitanna er nafn hans.
58
Svo segir Drottinn hersveitanna: Víður borgarmúr Babýlonar verður jafnaður við jörðu. Há borgarhliðin verða brennd til ösku. Þannig vinna þjóðir fyrir gýg, fólk þrælar sér út fyrir eldsmat.
59
Jeremía spámaður gaf Seraja Neríasyni, Mahasejasonar, fyrirmæli þegar Seraja fór með Sedekía, konungi í Júda, til Babýlonar á fjórða stjórnarári hans. Seraja sá um dvalarstaði konungs.
60
Jeremía hafði skrifað á bók um allt það böl sem koma átti yfir Babýlon. Það voru þau ummæli um Babýlon sem hér hafa verið skráð.
61
Jeremía sagði við Seraja: „Þegar þú kemur til Babýlonar skaltu lesa upp öll þessi orð
62
og segja: Drottinn, þú hefur sjálfur hótað þessum stað eyðingu svo að enginn geti búið þar framar, hvorki menn né skepnur. Hann á að verða eyðimörk um alla framtíð.
63
Þegar þú hefur lokið lestrinum skaltu binda stein við bókrulluna og fleygja henni út í Efrat
64
og segja: Þannig skal Babýlon sökkva og aldrei koma upp aftur. Það er afleiðing ógæfunnar sem ég sendi henni.“ Hér lýkur ræðum Jeremía.
← Chapter 50
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 52 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52