bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 28
Jeremiah 28
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 29 →
1
Þetta sama ár ávarpaði Hananja spámaður Assúrsson frá Gíbeon mig í húsi Drottins. Það var við upphaf stjórnar Sedekía Júdakonungs, á fjórða árinu, í fimmta mánuðinum, að hann talaði við mig frammi fyrir prestunum og öllu fólkinu og sagði:
2
„Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Ég brýt ok konungsins í Babýlon.
3
Innan tveggja ára mun ég senda aftur til þessa staðar öll þau ker úr húsi Drottins sem Nebúkadnesar konungur í Babýlon tók með sér héðan og flutti til Babýlonar.
4
Ég mun einnig flytja Jekonja Jójakímsson Júdakonung og alla útlagana frá Júda aftur til þessa staðar, segir Drottinn, því að ég mun brjóta ok konungsins í Babýlon.“
5
Jeremía spámaður svaraði Hananja spámanni frammi fyrir prestunum og öllu fólkinu sem var í húsi Drottins.
6
Jeremía spámaður sagði: „Já, vonandi gerir Drottinn þetta. Vonandi lætur Drottinn forspá þína rætast og flytur kerin úr húsi Drottins ásamt öllu fólkinu aftur hingað frá Babýlon.
7
En hlustaðu nú á það sem ég flyt þér og öllu fólkinu:
8
Fyrri tíðar spámenn, sem uppi voru á undan mér og þér, fluttu mörgum löndum og voldugum ríkjum boðskap um stríð, böl og drepsótt.
9
Hvort spámaður, sem boðar heill, er í raun sendur af Drottni sannast af því að orð hans rætast.“
10
Þá tók Hananja okið af hálsi Jeremía spámanni og braut það.
11
Því næst sagði Hananja spámaður frammi fyrir prestunum og öllu fólkinu: „Svo segir Drottinn: Áður en tvö ár eru liðin mun ég á sama hátt brjóta ok Nebúkadnesars konungs í Babýlon af hálsi allra þjóða.“ En Jeremía spámaður gekk leiðar sinnar.
12
Eftir að Hananja spámaður hafði brotið okið af hálsi Jeremía spámanni kom orð Drottins til Jeremía spámanns:
13
Far þú og segðu við Hananja: Svo segir Drottinn: Þú braust ok úr tré, í stað þess skaltu gera ok úr járni.
14
Því að svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Ég legg ok úr járni á háls allra þessara þjóða svo að þær þjóni Nebúkadnesari konungi í Babýlon. Þær skulu þjóna honum og ég fæ honum jafnvel dýr merkurinnar.
15
Jeremía spámaður sagði við Hananja spámann: „Hlustaðu nú, Hananja. Drottinn hefur ekki sent þig. Þú hefur blekkt þetta fólk til að reiða sig á lygar.
16
Þess vegna segir Drottinn: Ég sendi þig í burt af yfirborði jarðar. Þú deyrð á þessu ári því að þú hefur hvatt til fráhvarfs frá Drottni.“
17
Hananja spámaður dó þetta ár í sjöunda mánuðinum.
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 29 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52