bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 17
Jeremiah 17
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 18 →
1
Synd Júdamanna er skráð með járnpenna, grafin með demantsoddi í töflur hjartna þeirra og á altarishorn þeirra
2
svo að synir þeirra muni ölturu þeirra og Asérustólpa undir laufguðum trjám á hæðunum,
3
í fjöllunum á hálendinu. Ég framsel auð þinn og fjársjóði sem herfang, sem endurgjald fyrir allar syndir þínar sem þú hefur drýgt um allt land þitt.
4
Þú verður að láta af hendi erfðaland þitt sem ég gaf þér. Ég geri þig að þræli fjandmanna þinna í landi sem þú þekkir ekki því að reiði mín hefur blossað upp, hún brennur ævinlega.
5
Svo segir Drottinn: Bölvaður er sá sem treystir mönnum og reiðir sig á styrk dauðlegra en hjarta hans víkur frá Drottni.
6
Hann er eins og nakinn runni í eyðimörk og verður ekki hins góða var sem fram hjá fer. Hann verður að búa í sviðnu landi í eyðimörkinni, á óbyggilegri saltsléttu.
7
Blessaður er sá maður sem treystir Drottni, Drottinn er athvarf hans.
8
Hann er sem tré, gróðursett við vatn og teygir rætur sínar að læknum, það óttast ekki að sumarhitinn komi því að lauf þess er sígrænt. Það er áhyggjulaust í þurru árferði, ber ávöxt án afláts.
9
Svikult er hjartað framar öllu öðru og forhert. Hver skilur það?
10
Ég, Drottinn, rannsaka hjartað og prófa nýrun, geld hverjum manni eftir breytni hans og ávöxtum verka hans.
11
Sá er safnar rangfengnum auði er eins og akurhæna sem liggur á eggjum sem hún hefur ekki verpt. Á miðri ævi tapar hann auðæfunum, við ævilok telst hann heimskingi.
12
Hásæti dýrðarinnar er upp hafið frá öndverðu. Það er helgistaður vor.
13
Drottinn, von Ísraels, allir sem yfirgefa þig hljóta vansæmd, þeir sem snúa frá þér verða skráðir í sand því að þeir hafa yfirgefið Drottin, lind hins lifandi vatns.
14
Lækna mig, Drottinn, svo að ég verði heill, hjálpa mér svo að ég bjargist því að þú ert lofsöngur minn.
15
Nú spyrja menn mig: „Hvar er orð Drottins? Nú ætti það að rætast.“
16
Ég hef hvorki þrábeðið þig um ógæfu né óskað eftir óheilladeginum. Þú veist sjálfur hvað varir mínar hafa sagt, það liggur ljóst fyrir augliti þínu.
17
Vertu ekki ógnvaldur minn, þú sem ert athvarf mitt á óheilladeginum.
18
Ofsækjendur mínir skulu smánaðir en ég verð ekki smánaður, þeir skulu skelfast en ég skelfist ekki. Sendu óheilladaginn yfir þá, brjóttu þá niður, brjóttu þá niður enn og aftur.
19
Drottinn sagði við mig: Farðu og taktu þér stöðu í hliði, Þjóðhliðinu, sem Júdakonungar fara um þegar þeir koma heim eða fara í hernað, og í öllum borgarhliðum Jerúsalem.
20
Segðu við borgarbúa: „Hlýðið á orð Drottins, Júdakonungar, allir Júdamenn og allir Jerúsalembúar sem komið inn um þessi hlið.
21
Svo segir Drottinn: Gætið yðar, líf yðar liggur við. Berið enga byrði á hvíldardegi og flytjið ekkert inn um hlið Jerúsalem.
22
Berið engar byrðar úr húsum yðar á hvíldardegi og vinnið ekkert verk. Haldið hvíldardaginn heilagan eins og ég bauð feðrum yðar.“
23
En þeir gáfu engan gaum að því og lögðu ekki við hlustir heldur þverskölluðust og vildu hvorki hlýða né láta sér segjast.
24
En ef þér hlýðið á mig með athygli, segir Drottinn, og flytjið ekkert inn um hlið þessarar borgar á hvíldardegi, heldur haldið hann heilagan með því að vinna ekkert verk,
25
þá munu konungar, sem sitja í hásæti Davíðs, koma inn um hlið þessarar borgar. Þeir koma akandi í vögnum og ríðandi á hestum, þeir sjálfir og hirðmenn þeirra, Júdamenn og Jerúsalembúar. Þá verður þessi borg ævinlega í byggð.
26
Þá munu koma menn frá borgunum í Júda og úr umhverfi Jerúsalem, frá landi Benjamíns og af láglendinu, frá fjalllendinu og Suðurlandinu. Þeir munu hafa með sér brennifórn, sláturfórn, kornfórn og reykelsi og færa að þakkarfórn í húsi Drottins.
27
En ef þér hlýðið ekki á boð mitt að halda hvíldardaginn heilagan með því að bera engar byrðar um hlið Jerúsalem á hvíldardegi þá kveiki ég í hliðum Jerúsalem og eldurinn mun gleypa hallir Jerúsalem og ekki verða slökktur.
← Chapter 16
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 18 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52