bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 14
Jeremiah 14
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 13
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 15 →
1
Orð Drottins, sem kom til Jeremía, um þurrkinn mikla.
2
Júda skrælnar af þurrki, borgir hennar hrörna, íbúarnir syrgja, beygðir til jarðar, harmakvein stígur upp frá Jerúsalem.
3
Höfðingjarnir senda þjóna sína eftir vatni. Þegar þeir koma að brunnunum finna þeir ekkert vatn. Þeir snúa heim með tómar krukkur, vonsviknir og skömmustulegir og hylja höfuð sín.
4
Jarðvegurinn er sprunginn því að ekkert hefur rignt í landinu. Bændurnir eru því vonsviknir, þeir hylja höfuð sitt.
5
Jafnvel hindin í haganum yfirgefur nýborinn kálf því að hvergi sést stingandi strá.
6
Villiasnarnir standa á nöktum hæðum, þeir grípa andann á lofti eins og sjakalar, augu þeirra daprast því að hvergi er beit að hafa.
7
Þó að syndir vorar vitni gegn oss, láttu samt til þín taka vegna nafns þíns, Drottinn. Svik vor eru margvísleg, vér höfum syndgað gegn þér.
8
Þú, von Ísraels, frelsari hans á neyðartímum. Hvers vegna ertu eins og aðkomumaður í landinu, eins og ferðamaður sem tjaldar til einnar nætur?
9
Hvers vegna ertu eins og ruglaður maður, eins og hermaður sem ekki getur sigrað? Þú ert þó sjálfur á meðal vor, Drottinn, vér erum kenndir við þig, yfirgef oss ekki.
10
Svo segir Drottinn um þessa þjóð: Þeir hafa gaman af að eigra um stefnulaust, þeir hvíla ekki fæturna. En Drottinn gleðst ekki yfir þeim, nú minnist hann sektar þeirra og dregur þá til ábyrgðar fyrir synd þeirra.
11
Drottinn sagði enn fremur við mig: Ekki biðja um að þessu fólki farnist vel.
12
Þegar þeir fasta hlusta ég ekki á kvein þeirra. Þegar þeir færa brennifórn eða kornfórn gleðst ég ekki yfir þeim. Ég mun gereyða þeim með sverði, hungri og drepsótt.
13
Þá sagði ég: Æ, herra Drottinn! Spámennirnir segja við þá: Þér munuð ekki sjá sverð og ekkert hungur steðjar að því að ég mun veita yður varanlega heill á þessum stað.
14
En Drottinn svaraði mér: Spámennirnir boða lygi í mínu nafni. Ég hef hvorki sent þá, gefið þeim fyrirmæli né talað til þeirra. Upplognar sýnir, fánýtar spásagnir og eigin uppspuna boða þeir yður.
15
Þess vegna mælir Drottinn svo gegn spámönnunum sem flytja boð í mínu nafni án þess að ég hafi sent þá og segja að hvorki sverð né hungur muni ganga yfir þetta land: Þessir spámenn munu falla fyrir sverði og deyja úr hungri.
16
En mönnunum, sem þeir fluttu þessi boð, verður fleygt á göturnar í Jerúsalem. Þeir munu falla úr hungri og fyrir sverði. Enginn mun grafa þá, hvorki þá sjálfa né konur þeirra, syni þeirra né dætur. Þannig mun ég úthella yfir þá þeirri ógæfu sem þeir verðskulda.
17
Tala þessi orð til þeirra: Augu mín flóa í tárum dag og nótt, án afláts, því að mærin, dóttir þjóðar minnar, er beinbrotin og limlest, særð banvænu sári.
18
Gangi ég út á víðan vang sjást þar menn sem reknir hafa verið í gegn með sverði. Gangi ég inn í borgina sjást þar menn máttvana af hungri. Jafnvel spámaður og prestur hrekjast til lands sem þeir þekkja ekki.
19
Hefur þú hafnað Júda algjörlega? Hefur þú fengið andstyggð á Síon? Hvers vegna hefur þú sært oss sári sem ekki verður grætt? Vér væntum farsældar en ekkert gott kom, tíma endurreisnar en lítið á: aðeins skelfing!
20
Drottinn, vér játum afbrot vor, sekt feðra vorra, vér höfum syndgað gegn þér.
21
Afneitaðu ekki, smánaðu ekki hásæti dýrðar þinnar vegna nafns þíns. Minnstu sáttmálans við oss, rjúfðu hann ekki.
22
Geta fánýt goð framandi þjóða gefið regn? Eða sendir himinninn regnskúrir að eigin frumkvæði? Ert það ekki þú, Drottinn, Guð vor? Vér vonum á þig því að þú hefur gert þetta allt.
← Chapter 13
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 15 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52