bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 48
Jeremiah 48
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 47
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 49 →
1
Um Móab. Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Vei, Nebó, hún er lögð í eyði, Kirjataím fallin, virkið er orðið til skammar, lagt í rúst,
2
vegsemd Móabs er horfin. Í Hesbon brugguðu menn ill ráð gegn ríkinu: „Komið, upprætum þá sem þjóð.“ Madmen, þú munt einnig þagna, sverðið eltir þig.
3
Heyrið kveinið frá Hórónaím, eyðing og tortíming.
4
Móab er molaður, kveinin heyrast allt til Sóar.
5
Menn ganga grátandi upp stíginn við Lúkít, á veginum niður til Hórónaím heyrast skelfingaróp vegna tortímingarinnar.
6
Flýið, bjargið lífi yðar, verðið sem villiasnar í eyðimörkinni.
7
Þar sem þú treystir eigin verkum og auði verður þú unnin, Kamos mun fara í útlegð ásamt prestum sínum og höfðingjum.
8
Eyðandinn ræðst á sérhverja borg, engin borg mun bjargast. Dalurinn verður eyddur og sléttunni spillt eins og Drottinn hefur sagt.
9
Reisið minnisstein yfir Móab því að honum verður tortímt, borgirnar verða lagðar í auðn, enginn mun búa þar framar.
10
Bölvaður sé sá sem hikar við að vinna verk Drottins. Bölvaður sé sá sem synjar sverði sínu um blóð.
11
Móab naut friðar frá æsku, hann hvíldi í næði eins og vín á dreggjum. Honum var ekki hellt úr einu keri í annað og hann fór aldrei í útlegð. Því varðveitti hann bragð sitt og ilmurinn breyttist ekki.
12
Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég sendi menn til að hella úr honum, þeir munu tæma ker hans, brjóta krukkur hans.
13
Móab verður smánaður af Kamos eins og Ísraelsmenn voru smánaðir af Betel sem þeir treystu.
14
Hvernig getið þér sagt: „Vér erum hetjur, hraustir hermenn?“
15
Eyðandi Móabs heldur upp eftir gegn borgum hans en blómi æskumanna hans fer niður eftir og verður slátrað, segir konungurinn, Drottinn hersveitanna er nafn hans.
16
Tortíming Móabs er í nánd, ógæfan dynur brátt yfir hann.
17
Sýnið honum samúð, nágrannar hans, og allir sem þekkið nafn hans. Segið: „Hvers vegna brast hinn sterki stafur, hinn dýrlegi veldissproti?“
18
Stíg niður úr vegsemdinni, sestu í skarnið, dóttir, sem býrð í Díbon, því að eyðandi Móabs heldur gegn þér og brýtur varnarvirki þín.
19
Þú sem býrð í Aróer, gakktu út á götuna og horfðu í kringum þig, spyrðu flóttamanninn og konuna sem komist hefur undan: „Hvað gerðist?“
20
Móab var niðurlægður, já, niðurbrotinn. Grátið og kveinið. Kunngjörið við Arnon: Móab hefur verið eytt.
21
Refsidómur kom yfir sléttlendið, yfir Hólon, Jahsa og Mefaat,
22
yfir Díbon, Nebó og Bet-Díblataím,
23
yfir Kirjataím, Bet-Gamúl og Bet-Meon,
24
yfir Keríót og yfir Bosra, yfir allar borgir í Móab, nær og fjær.
25
Horn Móabs var höggvið af, armur hans brotinn, segir Drottinn.
26
Gerið Móab drukkinn því að hann hefur hreykt sér gegn Drottni, hann skal því spýja og verða að athlægi.
27
Varð Ísrael þér ekki aðhlátursefni? Var hann gripinn meðal þjófa fyrst þú skekur þig háðslega í hvert skipti sem þú nefnir hann?
28
Flýið borgirnar, setjist að í klettunum, þér, sem búið í Móab, farið að eins og dúfan sem gerir sér hreiður í klettum, í gapandi gjá.
29
Vér höfum heyrt um hroka Móabs, hann er fram úr hófi hrokafullur. Um hroka hans og stolt höfum vér heyrt, um dramb hans og ofmetnað.
30
Ég veit sjálfur um oflæti hans, segir Drottinn, marklaus gífuryrði og einskisverð verk.
31
Þess vegna græt ég yfir Móab, ég harma allan Móab, kveina yfir fólkinu í Kír-Heres.
32
Ég græt meira yfir þér, vínviður í Síbma, en yfir Jeser, greinar þínar héngu út yfir hafið, þær náðu til Jeser. Eyðandinn kastaði sér yfir uppskeru þína af ávöxtum og víni.
33
Fögnuður og gleði er horfin úr víngörðunum og úr Móabslandi. Vínið er þorrið í vínpressunum, enginn treður þær lengur, fagnaðarópin eru þögnuð.
34
Kveinið frá Hesbon og Eleale glymur til Jahas, menn æpa frá Sóar til Hórónaím og Eglat-Selisía, já, vatnsfarvegurinn við Nimrím breytist í eyðimörk.
35
Ég mun hindra, segir Drottinn, að Móab færi brennifórnir á fórnarhæðinni og kveiki guðum sínum fórnareld.
36
Hjarta mitt titrar vegna Móabs eins og flaututónn og hjarta mitt titrar eins og flaututónn vegna fólksins frá Kír-Heres því að það hefur misst það sem eftir var af eigum þess.
37
Sérhvert höfuð er rakað, hvert skegg hefur verið skorið af, á hverjum handlegg eru skinnsprettur, um lendarnar hærusekkur.
38
Á hverju þaki og hverju torgi í Móab heyrist harmagrátur því að ég hef mölbrotið Móab eins og gagnslaust leirker, segir Drottinn.
39
Æ, hversu niðurbrotinn er hann. Hversu skammarlega sneri Móab baki í fjandmennina og flýði. Og Móab er orðinn til athlægis og skelfingar öllum nágrönnum sínum.
40
Svo segir Drottinn: Óvinurinn kemur svífandi eins og örn og þenur vængina út yfir Móab.
41
Borgirnar eru unnar, fjallavirkin fallin, þann dag líður köppunum í Móab eins og konu í barnsnauð.
42
Móab verður afmáður, hann verður ekki þjóð framar því að hann hreykti sér gegn Drottni.
43
Geigur, gryfja og gildra ógna þér sem býrð í Móab, segir Drottinn.
44
Sá sem flýr geiginn fellur í gryfjuna, sá sem kemst upp úr gryfjunni lendir í gildrunni. Já, þetta sendi ég yfir Móab árið sem hann verður dreginn til ábyrgðar.
45
Í skugga Hesbons standa örmagna flóttamenn en eldur brýst út úr Hesbon, borg Síhons stendur í ljósum logum. Eldurinn sleikir þunnvanga Móabs, hvirfil hávaðamannanna.
46
Vei þér, Móab. Þú, þjóð Kamoss, ert glötuð. Synir þínir eru hraktir í útlegð, dætur þínar teknar til fanga.
47
Því næst mun ég snúa högum Móabs, segir Drottinn. Hér lýkur dómsorðunum yfir Móab.
← Chapter 47
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 49 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52