bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 13
Jeremiah 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 14 →
1
Drottinn sagði við mig: Farðu og kauptu þér línbelti, hnýttu það um lendar þér en láttu það ekki koma í vatn.
2
Ég keypti þá beltið samkvæmt boði Drottins og hnýtti það um lendar mér.
3
Þá kom orð Drottins aftur til mín:
4
Taktu beltið sem þú keyptir og þú hefur um lendar þér, haltu af stað austur að Efrat. Þar skaltu fela það í klettaskoru.
5
Ég fór þá og faldi það við Efrat eins og Drottinn hafði skipað mér.
6
Löngu síðar bar svo við að Drottinn sagði við mig: Haltu af stað austur að Efrat og sæktu beltið sem ég skipaði þér að fela þar.
7
Ég fór þá austur að Efrat, leitaði að beltinu og tók það þar sem ég hafði falið það. En þá kom í ljós að beltið var ónothæft með öllu.
8
Þá kom orð Drottins til mín:
9
Svo segir Drottinn: Þannig mun ég eyða stolti Júda og stolti Jerúsalem þó að mikið sé.
10
Þessi illa þjóð neitar að hlýða á boð mín. Þeir fylgja þrjósku eigin hjarta og elta framandi guði, þjóna þeim og dýrka. Því fer fyrir þeim eins og þessu belti sem er með öllu ónothæft.
11
Eins og beltið lagar sig að lendum mannsins hafði ég lagað alla Ísraelsmenn og Júdamenn að mér, segir Drottinn. Þeir áttu að vera minn lýður, mér til frægðar, lofstírs og prýði en þeir hlýddu ekki.
12
Segðu við þá: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: „Hvert vínker verður fyllt víni.“ Ef þeir þá svara þér: „Vitum vér ekki sjálfir að öll vínker eru fyllt víni?“
13
skaltu segja við þá: Svo segir Drottinn: Ég fylli alla íbúa þessa lands svo að þeir verði drukknir, konungana, sem sitja í hásæti Davíðs, prestana, spámennina og alla Jerúsalembúa.
14
Ég mun mola þá sundur hvern með öðrum, feður með sonum, segir Drottinn. Hvorki samúð, vorkunn né miskunn getur varnað því að ég eyði þeim.
15
Hlustið, takið eftir, hreykið yður ekki því að Drottinn talar.
16
Gefið Drottni, Guði yðar, dýrðina áður en dimmir, áður en yður skrikar fótur á rökkvuðum fjöllum. Þér væntið ljóss, hann breytir því í myrkur, gerir það að niðdimmu.
17
En ef þér viljið ekki hlusta hlýt ég að gráta í leynum yfir hrokanum. Tárin streyma af hvörmum mínum af því að hjörð Drottins verður flutt í útlegð.
18
Segðu við konunginn og konungsmóðurina: Setjist í neðstu sætin því að kórónan glæsta er fallin af höfðum ykkar.
19
Borgirnar í Suðurlandinu eru lokaðar og enginn opnar þær. Allir Júdamenn verða fluttir í útlegð, allir með tölu.
20
Hef upp augu þín, sjáðu þá sem koma úr norðri. Hvar er hjörðin sem þér var falin, hinir vænu sauðir þínir?
21
Hvað ætlarðu að segja þegar vinir þínir, sem þú hefur laðað að þér, verða settir til að ríkja yfir þér? Færðu þá ekki hríðir eins og kona í barnsnauð?
22
Ef þú hugsar með sjálfri þér: Hvers vegna hefur allt þetta dunið á mér? skaltu vita að vegna mikillar syndar þinnar hefur pilsfaldi þínum verið lyft og þér nauðgað.
23
Getur Núbíumaður breytt hörundslit sínum eða pardusdýr blettum sínum? Þá getið þér líka gert gott sem hafið vanist að gera illt.
24
Ég mun því dreifa yður eins og stráum sem fjúka undan eyðimerkurvindinum.
25
Það er hlutskipti þitt, launin sem ég hef skammtað þér, segir Drottinn, af því að þú gleymdir mér en treystir lygum.
26
Nú lyfti ég einnig pilsfaldi þínum yfir höfuð þér svo að blygðun þín verði sýnileg.
27
hjúskaparbrot þín, lostavein og blygðunarlaus hórdómur. Ég hef séð andstyggilega hegðun þína á hæðunum og á sléttunum. Vei þér, Jerúsalem, ef þú hreinsar þig ekki. Hve lengi enn mun þetta vara?
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52