bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 21
Jeremiah 21
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 22 →
1
Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Sedekía konungur sendi Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu:
2
Leitaðu ráða hjá Drottni fyrir oss því að Nebúkadresar konungur í Babýlon herjar á oss. Ef til vill mun Drottinn gera fyrir oss eitt af mörgum kraftaverkum sínum og knýja Nebúkadresar til undanhalds.
3
Jeremía sagði við þá: Þetta skuluð þér segja við Sedekía:
4
Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Ég mun snúa vopnunum í höndum yðar gegn yður þegar þér farið að berjast með þeim við konunginn í Babýlon og Kaldea sem sækja að yður utan við borgarmúrana. Ég mun safna þeim saman mitt í þessari borg.
5
Ég mun sjálfur berjast gegn yður með uppréttri hendi og sterkum armi, með reiði, heift og mikilli bræði.
6
Ég mun ljósta íbúa þessarar borgar, bæði menn og skepnur, þeir skulu deyja í ógurlegri drepsótt.
7
Eftir það, segir Drottinn, mun ég selja Sedekía Júdakonung ásamt hirðmönnum hans og þjóð og öllum í þessari borg, sem hafa bjargast undan drepsótt, sverði og hungri, í hendur Nebúkadresari Babýloníukonungi og í hendur fjandmönnum þeirra og þeim sem sækjast eftir lífi þeirra. Þeir munu fella þá með sverðseggjum hlífðarlaust, vægðarlaust og miskunnarlaust.
8
Og enn skaltu segja þessu fólki: Svo segir Drottinn: Ég legg fyrir yður veginn til lífsins og veginn til dauðans.
9
Sá sem verður um kyrrt í þessari borg mun láta lífið fyrir sverði, hungri og drepsótt. En sá sem gengur út og gefst upp fyrir Kaldeunum sem sitja um yður mun lifa og fá eigið líf að herfangi.
10
Því að ég sný andliti mínu gegn þessari borg til að færa henni ógæfu en ekki heill, segir Drottinn. Hún verður seld konunginum í Babýlon í hendur, hann mun brenna hana í eldi.
11
Til konungsættar Júda: Hlýðið á orð Drottins,
12
ætt Davíðs. Svo segir Drottinn: Fellið réttláta dóma hvern morgun, bjargið úr greipum kúgarans þeim sem rænt hefur verið svo að heift mín brjótist ekki út sem eldur vegna illvirkja þeirra, bál sem enginn getur slökkt.
13
Nú ræðst ég gegn þér sem gnæfir yfir dalinn, gegn klettinum á sléttunni, segir Drottinn. Þér spyrjið: Hver getur ráðist á oss og hver kemst inn í bústaði vora?
14
Ég dreg yður til ábyrgðar fyrir verk yðar, segir Drottinn, og legg eld að skóginum, hann skal gleypa allt umhverfis sig.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52