bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 46
Jeremiah 46
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 45
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 47 →
1
Þetta birtist Jeremía spámanni sem orð Drottins um þjóðirnar.
2
Um Egyptaland: Gegn her Nekós faraós, konungs Egyptalands, sem var við fljótið Efrat, við Karkemis, og Nebúkadresar, konungur í Babýlon, sigraði á fjórða stjórnarári Jójakíms Jósíasonar Júdakonungs:
3
Búist smáskjöldum og langskjöldum, haldið til orrustu.
4
Spennið vagnhestana fyrir og stígið á bak reiðhestunum. Gangið fram með hjálm á höfði, fægið spjótin, búist brynju.
5
Hvað sé ég? Þeir skelfast. Þeir hörfa undan, kapparnir eru yfirbugaðir, þeir flýja, líta ekki við. Ógn steðjar að úr öllum áttum, segir Drottinn.
6
Sá sem er frár á fæti nær ekki að flýja, kappinn kemst ekki undan. Norður frá, á bökkum Efrats, hnjóta þeir og hrasa.
7
Hver er það sem brýst fram eins og Níl í vexti, eins og dynjandi vatnsflaumur?
8
Egyptar brjótast fram eins og Níl, eins og dynjandi vatnsflaumur. Þeir hugsa: Ég mun brjótast fram, flæða yfir landið, eyða borgunum og íbúum þeirra.
9
Áfram, stríðsfákar, æðið fram, hervagnar, gangið fram, hermenn, þér skjaldberar frá Kús og Pút og Lydíumenn sem spennið boga.
10
Þessi dagur er dagur Drottins hersveitanna, dagur hefndarinnar er hann hefnir sín á fjandmönnum sínum. Sverðið mun eta og seðjast, verða drukkið af blóði þeirra, því að Guð, Drottinn hersveitanna, heldur fórnarveislu í landinu fyrir norðan, við Efrat.
11
Farðu upp til Gíleaðs og sæktu græðandi smyrsl, mærin, dóttirin Egyptaland. Til einskis safnarðu að þér lyfjum, sár þitt grær ekki.
12
Þjóðirnar frétta um smán þína, harmakvein þitt glymur um alla jörðina því að kappi hnýtur um kappa, þeir falla hver um annan.
13
Orðið, sem Drottinn flutti Jeremía spámanni, um að Nebúkadresar, konungur í Babýlon, kæmi til að ráðast á Egyptaland:
14
Kunngjörið þetta í Egyptalandi, boðið það í Migdól, boðið það í Nóf og Takpanes. Segið: „Rístu upp og vertu viðbúinn, því að sverðið gleypir allt umhverfis yður.“
15
Hvers vegna er hinn máttugi lagður að velli? Hann stendur ekki uppréttur af því að Drottinn hratt honum,
16
hann lét marga hrasa svo að þeir féllu. Þá sögðu þeir hver við annan: Komið, snúum aftur til þjóðar vorrar, til ættlands vors, undan hinu eyðandi sverði.
17
Nefnið faraó Egyptalandskonung „hávaðasegg sem lét tækifærið ganga sér úr greipum“.
18
Svo sannarlega sem ég lifi, segir konungurinn, Drottinn hersveitanna er nafn hans: Eins og Tabor ber af öðrum fjöllum, eins og Karmel, sem gnæfir yfir hafið, er hann sem nálgast.
19
Taktu saman farangur til útlegðar, þú, dóttirin Egyptaland, sem býrð við öryggi, því að Nóf verður eyðimörk, brennd til ösku og mannauð.
20
Egyptaland er álitleg kvíga, broddfluga ræðst á hana úr norðri.
21
Málalið mitt í landinu líkist alikálfum en þeir hörfa einnig undan, flýja allir sem einn og fá ekki staðist þegar dagur eyðingarinnar kemur yfir þá, stund uppgjörsins.
22
Egyptaland hvæsir eins og naðra þegar þeir koma með her sinn. Þeir gera árás með öxum eins og skógarhöggsmenn,
23
þeir fella skóg Egyptalands, segir Drottinn, þeir eru óteljandi, fleiri en engisprettur, engri tölu verður á þá komið.
24
Dóttirin Egyptaland verður svívirt, seld í hendur þjóðinni úr norðri.
25
Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels, hefur sagt: Ég refsa Amón frá Nó, og faraó og Egyptalandi og guðum landsins og konungum, bæði faraó og þeim sem treysta honum.
26
Ég mun selja þá í hendur þeim sem sækjast eftir lífi þeirra, í hendur Nebúkadresari, konungi í Babýlon, og mönnum hans. En eftir það verður Egyptaland byggt aftur eins og á fyrri tíð, segir Drottinn.
27
En þú, þjónn minn, Jakob, óttast ekki, lát ekki hugfallast, Ísrael, því að ég bjarga þér frá fjarlægu landi og niðjum þínum úr útlegð. Jakob mun snúa heim og njóta næðis, hann mun búa þar óhultur og enginn mun ógna honum.
28
Þú, þjónn minn, Jakob, óttast ekki, segir Drottinn, því að ég er með þér. Ég mun eyða öllum þeim þjóðum sem ég hrakti þig til. Þér mun ég aldrei eyða heldur mun ég hirta þig við hæfi, ég get ekki látið þér óhegnt með öllu.
← Chapter 45
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 47 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52