bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 50
Jeremiah 50
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 49
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 51 →
1
Orðið sem Drottinn flutti af munni Jeremía spámanns gegn Babýlon, landi Kaldea.
2
Kunngjörið meðal þjóðanna og boðið það, hefjið gunnfána og boðið, þegið ekki um það en segið: Babýlon er sigruð, Bel auðmýktur, Mardúk skelfingu lostinn, skurðgoð Babýlonar eru auðmýkt, goð hennar skelfd.
3
Því að þjóð úr norðri ræðst á Babýlon, hún leggur landið í eyði svo að enginn býr þar framar, menn og skepnur flýja, hverfa á braut.
4
Á þeim dögum og á þeim tíma, segir Drottinn, munu Ísraelsmenn koma heim og Júdamenn með þeim. Grátandi munu þeir ganga og leita Drottins, Guðs síns.
5
Þeir spyrja til vegar til Síonar, þangað stefna þeir: Komið, vér skulum bindast Drottni með ævarandi sáttmála sem aldrei gleymist.
6
Þjóð mín var villuráfandi sauðahjörð, hirðar hennar leiddu hana afvega í fjöllunum, þeir reikuðu um fjöll og hæðir og gleymdu hvíldarstað sínum.
7
Allir sem rákust á sauðina átu þá og fjandmenn þeirra sögðu: Vér gerum ekkert rangt því að þeir hafa syndgað gegn Drottni, hinu rétta haglendi þeirra, og gegn von feðra þeirra, Drottni.
8
Farið frá Babýlon og úr landi Kaldea og verið sem forystusauðir fyrir hjörðinni.
9
Því að ég stofna sjálfur bandalag mikilla þjóða og leiði það gegn Babýlon, frá landinu úr norðri. Það fylkir sér gegn Babýlon og úr norðri verður hún unnin. Örvar þess eru sem giftusöm hetja sem ekki snýr aftur án þess að hafa drýgt dáð.
10
Land Kaldea verður herfang, allir sem ræna það fá nægju sína, segir Drottinn.
11
Já, gleðjist og fagnið, þér sem rænduð erfðahlut mínum. Já, hoppið um eins og kvíga í haga, hvíið eins og stóðhestar.
12
Móðir yðar verður auðmýkt, hún sem fæddi yður verður smánuð: Já, hún er aumust allra þjóða, eyðimörk, uppþornuð og skrælnuð.
13
Hún verður óbyggð vegna heiftar Drottins, hún verður að algjörri auðn. Hvern sem á leið hjá Babýlon mun hrylla við, hann mun hæðast að öllum áföllum hennar.
14
Bogaskyttur, fylkið yður allar umhverfis Babýlon. Skjótið á hana. Sparið ekki örvarnar því að hún hefur syndgað gegn Drottni.
15
Hrópið heróp gegn henni úr öllum áttum. Hún hefur gefist upp. Súlur hennar hrynja, múrarnir jafnaðir við jörðu. Þetta er hefnd Drottins, hefnið yðar á Babýlon, farið með hana eins og hún fór með aðra.
16
Upprætið sáðmenn úr Babýlon og þá sem beita sigðinni um uppskerutímann. Undan hinu eyðandi sverði snýr hver og einn, snýr aftur til þjóðar sinnar, sérhver flýr til síns lands.
17
Ísrael var sundruð sauðahjörð sem ljón höfðu tvístrað. Fyrst át Assýríukonungur nokkuð af henni en að lokum nagaði Nebúkadresar, konungur í Babýlon, beinin.
18
Þess vegna segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels, svo: Ég mun draga konunginn og land hans til ábyrgðar eins og ég gerði Assýríukonung ábyrgan.
19
En ég leiði Ísrael aftur heim í haglendi sitt, hann verður á beit á Karmel og Basan, á fjöllum Efraíms og Gíleaðs mun hann seðja hungur sitt.
20
Á þeim dögum og á þeirri tíð, segir Drottinn, verður sektar Ísraels leitað án árangurs og synda Júda án þess að þær finnist því að ég mun fyrirgefa þeim sem ég skil eftir.
21
Sæktu fram gegn Marataím og íbúunum í Pekod. Helgaðu þá banni með sverði, segir Drottinn, gerðu allt það sem ég hef boðið þér.
22
Vopnagnýr glymur í landinu, algjör ósigur.
23
Er ekki kylfan moluð sem sló allan heiminn? Hvílík hryggðarmynd er Babýlon orðin meðal allra þjóða.
24
Þú lagðir snöru og festist í henni sjálf. Áður en þú vissir af, Babýlon, varstu gripin og tekin höndum því að þú bauðst Drottni birginn.
25
Drottinn hefur opnað vopnabúr sitt og sótt vopn heiftar sinnar því að Drottinn, Guð hersveitanna, hefur verk að vinna í landi Kaldea.
26
Sækið gegn henni úr öllum áttum, opnið forðabúrin. Hrúgið öllu saman eins og kornbing, helgið það síðan banni, ekkert má eftir verða.
27
Drepið alla uxana með sverði, leiðið þá alla til slátrunar. Vei þeim. Þeirra tími er kominn, dagur uppgjörs.
28
Hlýðið á! Flóttamennirnir, sem hafa sloppið frá landi Babýlonar, greina frá hefnd Drottins, Guðs vors, á Síon, hefnd fyrir musteri hans.
29
Kveðjið til bogaskyttur gegn Babýlon, alla sem benda boga. Setjist um hana á allar hliðar, enginn skal komast undan. Gjaldið Babýlon verk hennar, farið með hana eins og hún fór með aðra. Þar sem hún hreykti sér gegn Drottni, gegn Hinum heilaga í Ísrael,
30
munu æskumenn hennar falla á torgum og allir hermenn hennar bíða bana á þeim degi, segir Drottinn.
31
Nú fer ég gegn þér, hrokagikkur, segir Drottinn, Guð hersveitanna, því að þinn tími er kominn, dagur uppgjörs.
32
Hinn drambláti hrasar og dettur, enginn hjálpar honum á fætur. Ég kveiki í borgum hans, eldurinn gleypir allt sem umhverfis hann er.
33
Svo segir Drottinn hersveitanna: Ísraelsmenn eru kúgaðir og Júdamenn einnig. Allir þeir sem fluttu þá í útlegð hafa þá í haldi, vilja ekki láta þá lausa.
34
En endurlausnari þeirra er máttugur, Drottinn hersveitanna er nafn hans. Hann mun sjálfur reka réttar þeirra þannig að hann færi heiminum hvíld en íbúum Babýlonar ófrið.
35
Sverð gegn Kaldeum, segir Drottinn, gegn íbúum Babýlonar, gegn höfðingjum hennar og vitringum.
36
Sverð kemur gegn spáprestunum svo að þeir verði að glópum. Sverð kemur gegn köppum Babýlonar svo að þeir missi kjarkinn.
37
Sverð kemur gegn hestum hennar og vögnum, gegn öllum þjóðunum sem í henni eru svo að þær verði að konum. Sverð kemur gegn fjársjóðum hennar svo að þeim verði rænt.
38
Sverð kemur gegn vatni hennar svo að það þorni. Þar sem þetta er land skurðgoða æra líkneskin þá.
39
Því munu eyðimerkurdýr og hýenur setjast þar að, strútar munu búa í Babýlon. Aldrei mun neinn setjast þar að framar, þar mun enginn búa frá kyni til kyns.
40
Eins fer fyrir henni og þegar Guð eyddi Sódómu og Gómorru og nágrannaborgum hennar, segir Drottinn. Þar mun enginn maður búa og enginn hafa þar viðdvöl.
41
Þjóð kemur úr norðri, mikil þjóð. Voldugir konungar halda af stað frá endimörkum jarðar.
42
Þeir eru vopnaðir bogum og bjúgsverðum, þeir eru grimmir og miskunnarlausir. Hávaðinn frá þeim líkist hafgný, þeir koma ríðandi á hestum, hver þeirra búinn til bardaga gegn þér, dóttirin Babýlon.
43
Þegar konungur Babýlonar heyrði fréttina lömuðust hendur hans, angist greip hann og hann kvaldist eins og kona í barnsnauð.
44
Líkt og ljón, sem rís upp úr kjarrinu á bökkum Jórdanar og stígur út á sígrænt engið, mun ég flæma þá burt á augabragði og velja mér bestu sauðina að bráð. Því að hver er jafnoki minn? Hver getur krafið mig reikningsskila? Hvaða hirðir stenst frammi fyrir mér?
45
Heyrið því ákvörðun Drottins sem hann hefur tekið um Babýlon, ráðin sem hann hefur ráðið gegn landi Kaldea: Jafnvel hinir minnstu úr hjörðinni verða dregnir burt, sannarlega mun bithaga þeirra hrylla við örlögum þeirra.
46
Jörðin nötrar af hrópinu: „Babýlon er unnin,“ og óp hennar heyrist til annarra þjóða.
← Chapter 49
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 51 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52